Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Blaðsíða 27
3. Stofnun málfundafélaga Sjálfstæðisverka-
manna.
1. Sjálfstæðisflokkurinn átti upptök að því, fyrst-
ur allra flokka, að koma á stofn stjórnmálaskóla,
til þess að auka raunhæfa þekkingu og hæfileika
flokksmanna í stjórmálabaráttunni. Hefir skóli
bessi verið starfræktur þrjú undanfarin ár í Reykja-
vík, þó þannig, að fram að þessu hafa aðeins yngri
áhugamenn flokksins utan af landsbyggðinni haft
aðgang að honum. Auk þess hafa verið haldin
stjórnmálanámskeið í kaupstöðum utan Reykjavík-
ur, bæði Isafirði og Akureyri. — Eftir þeim árangri,
sem þegar hefir náðst af skólstarfseminni, verður
ekki annað sagt, en að hún hafi borið góðan ávöxt.
2. Sjálfstæðisflokkurinn er bæði fyrsti og einasti
stjórnmálaflokkurinn, sem hefir starfandi sérstök
stjórnmálafélög kvenna innan vébanda sinna. —
Upphaf þeirrar starfsemi er að rekja til stofnunar
Sjálfstæðiskvennafélagsins „Hvöt“ í Reykjavík, þ.
17. febrúar, 1937. Með einstökum áhuga nokkurra
Sjálfstæðiskvenna, var stofnun þessa félags hrundið
* framkvæmd, en eftir aðeins þriggja ára starf er
Það þegar orðið eitt með stærstu stjórnmálafélög-
um bæjarins og telur um 700—800 meðlimi.
Auk þess hefir félagið, gengist fyrir stofnun
Sjálfstæðiskvennafélaga annars staðar á landinu,
bannig að nú eru alls starfandi sex kvennfélög:
„Hvöt“ í Reykjavík.
„Vorboðinn“ í Hafnarfirði.
„Eygló“ í Vestmannaeyjum.
„Vörn“ á Akureyri.
„Efling“ á Siglufirði.
„Brynja“ á ísafirði.
25