Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Blaðsíða 28
Hefir þegar komið fram á marga lund, hversu
flokknum er mikill styrkur að starfsemi kvennfé-
laganna.
3. Stofnun málfundafélaga Sjálfstæðisverka-
manna hefir markað tímamót í sögu verkalýðshreyf-
ingarinnar hér á landi. Þó að það væri ætíð vitað, að
Sjálfstæðisflokkurinn átti mikið fylgi meðal verka-
manna, kom þetta fylgi þó yfirleitt ekki fram innan
vébanda verkalýðsfélaganna, sökum þess skipulags,
sem þar ríkti, og til var orðið vegna ofurkapps og
yfirgangs sósíalista.
Á þessu varð skyndilega snögg breyting, þegar
nokkrir áhugasamir verkamenn í Reykjavík tóku
síg til og stofnuðu málfundafélag Sjálfstæðisverka-
manna, „Óðinn“ á árinu 1938.
Markmið þeirra var að styrkja aðstöðu Sjálfstæð-
isstefnunnar innan verklýðssamtakanna og berjast
fyrir fullu jafnrétti verkamanna innan sinna eigin
félagssamtaka, hvar í flokki sem þeir stæðu. —
,,Óðinn“ var stofnaður með 29 meðlimum, en tel-
ur nú þegar 400—500 félaga og er árangur af starf-
semi félagsins alkunnur. —
Alls hafa nú verið stofnuð 12 málfundafélög
Sjálfstæðisverkamanna á þessum stöðum: Reykjavík,
Hafnarfirði, Akranesi, Keflavík, Stokkseyri, Vest-
mannaeyjum, Flateyri, Bíldudal, Þingeyri, Patreks-
firði, Bolungarvík og ísafirði.
Samtals eru nú starfandi 40 almenn félög Sjálf-
stæðismanna. 12 félög ungra Sjálfstæðismanna, 6
félög Sjálfstæðiskvenna og 12 málfundafélög Sjálf-
stæðisverkamanna.
26