Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 31
í flokksráði, þó að þeir séu ekki sérstaklega kjörn-
ir í það.
Formaður flokksins er formaður flokksráðs.
2. Flokksráðsfundir skulu að jafnaði haldnir í
þingbyrjun og síðan er þurfa þykir að áliti mið-
stjórnar. Formaður boðar fundi og er honum skylt
að gera það, ef 10 flokksráðsmenn, ,eða fleiri, krefj-
ast þess. Fundur flokksráðs er lögmætur, ef a. m. k.
20 flokksráðsmenn sækja fund.
Ekki má taka ákvörðun um afstöðu flokksins til
annarra landsmálaflokka, nema með samþykki
flokksráðs.
III. Um Miðstjórn.
Framkvæmdastjórn flokksins nefnist miðstjórn.
Miðstjórnin skal skipuð 10 mönnum. Landsfund-
ur kýs 4, flokksráð 4, en formaður flokksins er sjálf-
kjörinn í miðstjóm og sömuleiðis formaður Sam-
bands ungra Sjálfstæðismanna.
Formaður flokksins er formaður miðstjórnar.
Deyi miðstjórnarmaður, eða forfallist, kýs flokks-
ráð annan í hans stað.
Miðstjórn skal hafa skrifstofu í Reykjavík, ráða
sér framkvæmdastjóra og erindreka og annað
starfsfólk eftir þörfum.
IV. Um Þingflokkinn.
Þingflokkur Sjálfstæðismanna, ásamt flokksráði
°g miðstjórn, skal marka stefnu flokksins, eftir
bví sem þörf krefur, á milli landsfunda.
Miðstjóm og þingflokkurinn kjósa formann
Dokksins og varaformann að afloknum landsfundi
°g gildir kosning þeirra á milli landsfunda.
29