Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 35
Árni Jónsson frá Múla, alþm. 118 atkv.
Pétur Magnússon, hæstarréttarm.fl.m. 102 —
Síðan hefir þingflokkurinn og miðstjórn endur-
kosið ólaf Thors sem formann flokksins — og flokks-
ráðið kosið þessa menn til viðbótar í miðstjórnina:
Magnús Jónsson, prófessor.
Valtýr Stefánsson, ritstjóri.
Jakob Möller, fjármálaráðnerra.
Sigurður Kristjánsson, alþm.
Bjarni Snæbjörnsson, læknir.
VI. Fundarlok.
Landsfundinum lauk sunnudaginn 18. febr. með
samsæti að Hótel Borg.
Voru þar fluttar margar ræður og hvatningarorð.
Formaður flokksins sagði fundinum slitið. Þakk-
aði hann þann mikla áhuga og einhug, sem ríkt hefði
meðal fundarmanna. Hann þakkaði fulltrúum fyrir
komuna — en margir hefðu átt um langan og erfiðan
veg að sækja. Óskaði hann fulltrúunum fararheilla
og góðrar heimkomu.
33