Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 40

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 40
kosnir með 14500 atkvæðum, sem sitja á þingbekkjum með 17 þingmönnum, kosnum með 26 þúsund atkvæð- um, eru í rauninni ekkert annað en 19 háðsmerki aft- an við lýðræðishugsjónina, eins og hún er í fram- kvæmdinni hér á landi, og sönnun þess, að þeirri bar- áttu, sem háð var undir forystu Sjálfstæðisflokksins, um lýðræði og jafnrétti hér á landi, er enn ekki lokið. Sannleikurinn í þessu máli er sá, að Sjálfstæðis- flokkurinn vann í raun og veru kosningamar, en hitt er sannmæli, að Framsóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn fengu löglega kosinn þingmeirihluta, og áttu af þeim ástæðum að geta setið áfram í 4 ár. En reyndin varð önnur. Á vorþinginu 1937 var að- eins eitt af hinum 5 áðurnefndu áhugamálum Alþýðu- flokksins afgreitt. Það var afgreitt með sameiginleg- um atkvæðum Sjálfstæðismanna og 'Framsóknar- manna, en gegn atkvæðum Alþýðuflokksins. Nú kom þingið saman að nýju eftir kosningarnar, haustið 1937. Alþýðuflokkurinn hafði boðið sig fram upp á þessi stefnumál sín, og hefði því mátt ætla að hann legði þau strax fyrir þingið og krefðist þess, að þau yrðu samþykkt, en gerði ella alvöru af því að slíta samvinnunni og taka ráðherra sinn úr stjóminni, eins og hann hafði hótað 16. apríl þá um vorið. En úr þessu varð ekki. Alþýðuflokkurinn hreyfði engu þeirra mála en hinsvegar sameinuðust Framsóknarflokkur- inn og Alþýðuflokkurinn um það, að leggja á þjóðina nýja skatta, sem námu 2 milljónum og 650 þúsundum króna, en áður vom þessir flokkar búnir að leggja á nýja skatta, samtals um 4 milljónir, og er þá ótalinn sá tekjuauki, sem ríkissjóði hlotnaðist af breyttri á- fengislöggjöf, þegar heimilaður var innflutningur sterkra drykkja. Að öðm leyti var þetta þing alveg 38

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.