Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 53

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Page 53
við aðrar þjóðir. Nú var sú íhlutun ekki talin n0egja, heldur álitið nauðsynlegt að stjórnin réði yfir öllum útflutningnum, meðal annars í því skyni að tryggja, að sú vöruverðhækkun, sem stjórnin taldi vera í vændum, kæmi að fullum notum. Hinn 12. sept. s. 1. voru því gefin út bráðabirgðalög, sem bönnuðu útflutning á öllum vörum, nema að fengnu leyfi ríkisstjórnarinnar, og var ríkisstjórninni heim- ilað að stofna útflutningsnefnd, er færi með um- boð stjórnarinnar í þessum efnum. Þessi nefnd var þegar stofnuð, og hefir síðan haft yfirumsjón með öllum útflutningi frá landinu. Hefir hún þegar unnið mjög mikið og vandasamt verk, og það er óhætt að fullyrða, að þjóðarheildin hefir hagnazt um margar miljónir af starfsemi hennar. Hirði ég ekki að rekja þá sögu að þessu sinni, en mun gera nokkuð fyllri grein fyrir störfum nefndarinnar í útvarpsræðu, er ég bráðlega mun flytja um afkomu atvinnuveganna á síðasta ári. Að því er siglingarnar snertir, komu þegar fram óskir um það, að ríkið tæki kaupskipaflotann í sínar hendur. Úr þessu varð þó ekki, enda tryggði atvinnumálaráðuneytið með samningi við öll skipa- félögin, að þau ráðstöfuðu skipunum í samræmi við óskir ráðuneytisins, og að farmgjöldunum yrði haldið innan eðlilegra takmarka. Hefir það sam- komulag gefizt vel til þessa, og munu í þeim efn- um engar breytingar verða, meðan skipafélögin verða við óskum ráðuneytisins. Bresti á það, mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því, að gera nauðsyn- legar ráðstafanir til þess að tryggja það, að farm- gjöldin hækki ekki að nauðsynjalausu dýrtíðina í landinu. 51

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.