Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 55

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 55
Með störfum verðlagsnefndar hefir svo verið reynt að halda verðlaginu innan lands í skefjum. Þykir mér í því sambandi sérstök ástæða til þess að taka undir þau orð, er féllu af vörum viðskipta- málaráðherra í útvarpsræðu nýlega, er hann gat um það, að íslenzkir kaupsýslumenn hefðu orðið sérstaklega vel við þeirri kröfu ríkisvaldsins, að leyfa almenningi í landinu að njóta góðs af þeim vörubirgðum, er hér voru fyrirliggjandi og höfðu verið keýptar með lágu verði. Er þetta mikil og lofsverð tilhliðrunarsemi af kaupsýslumönnum, sem að sjálfsögðu horfa fram á það, að þeir á sín- um tíma verða að taka skellinn af verðfalli þeirr- ar vöru, er þeir liggja með, þegar ófriðnum lýkur, og vænta má almennrar lækkunar á vöruverð- inu. Ég hefi nú gert að umræðuefni nokkur af þeim viðfangsefnum, sem stjórnin þurfti að glíma við, fiftir að ófriðurinn hófst. Ýms þeirra voru örðug viðfangs, en þó er það sannleikurinn, að lang örð- ugasta viðfangsefnið hefir verið varðandi aðstöðu landsins út á við, og þá fyrst og fremst gegn ófrið- araðilunum. Um þetta get ég af skiljanlegum á- stæðum ekki leyft mér að tala, en það get ég sagt, að ríkisstjórnin hefir jafnan reynt til hins ýtrasta að gæta þess vandlega, að gera öllum jafnt undir höfði. En þetta hefir reynzt erfitt, því að oft vill það verða, að það sem öðrum aðilanum finnst eðli- legt og sjálfsagt að krefjast sér til handa, telur hinn aðilinn beinlínis fjandsamlega ráðstöfun gegn sér, ef við er orðið. Þessi vandkvæði í sambandi við sambúð Islend- 53

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.