Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 7

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 7
Sk'ípulagsmál 7 ÓLAFUR ST. VALDIMARSSON RÁÐUNEYTISSTJÓRI: AVARP Á RÁÐSTEFNU UM FERÐAMÁL Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ÞANN 5. JÚNÍ 1987 Ég vil hefja mál mitt með því að lysa yfir ánægju minni með að atvinnumálanefnd Samtaka sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu skuli gangast fyrir þessari ferðamálaráðstefnu. Það var ekki vonum fyrr að það svæði landsins, sem flestir ferðamenn leggja leið sína um, þar á meðal nær allir erlendir ferðamenn sem til landsins koma, tæki við sér í þessu mikilsverða máli. A undanfömum árum hafa verið stofnuð ferðamálasamtök um allt land og þau hafa flest hver haldið uppi blómlegu og árangursríku starfi að ferðamálum og nú tiltölulega nyverið stofnað með sér heildarsamtök. Tilvist þessara samtaka gerði fram- kvæmanlega þá úttekt á íslenskum ferðamálum, sem gerð var á vegum samgönguráðu- neytisins og lögð hefur verið fram og almennt gengur undir nafninu græna skyfslan. Það er þó ljóður á þessari skýrslu að ekki reyndist unnt að fá neinar upplýsingar um ferðamál frá Reykjavíkurborg. Einnig tókst okkur ekki að afla nema mjög fátæklegra upplýsinga um ferða- mál frá Ferðamálasamtökum Suðumesja. En það er óþarfi að vera að sífra yfir þessu, ég leyfi mér að líta svo á að þessi ráðstefna sé upphafið að því að ferðamál verði tekin fastari tökum á höfuðborgarsvæðinu og ákveðin stefnumörkun gerð í þeim efnum. Mér finnst ástæða til að rifja það hér upp að merkilegt framtak átti sér stað í ferðamálum íslendinga á árunum 1955 til 1960 og það einmitt fyrir forgang aðila á höfuðborgarsvæðinu. Þá var stofnað Ferðamálafélag Reykja- víkur og þótt það yrði ekki ekki langlíft skildi það eftir sig varanleg spor í þróun íslenskra ferðamála. Forystumenn að stofnun þessa félags vom meðal annars Ludvig Hjálmtýsson, fyrrverandi ferðamálastjóri, Gísli Sigurbjömsson, forstjóri, Agnar Kofoed Hansen, flugmálastjóri, og ýmsir fleiri. Félagið fékk hingað til lands franskan ferða- málasérfræðing, Georges Lebrec. Hann samdi skýrslu um ferðamál á Islandi og þróun þeirra í júlí 1960, en skýrslan var lengi hálfgildings biblía þeirra sem fengust við ferðamál. Ferðamálafélag Reykjavíkur varð að vísu ekki langlíft og lognaðist útaf eftir nokkur ár, en í framhaldi af því og sem óbein afleiðing af tilvist þess voru fyrstu heildarlögin um íslensk ferðamál sett 1964, en með þeim var meðal annars Ferðamálaráð stofnað. Sú önnur megin breyt- ing var gerð með þessum lögum að einkaréttur Ferðaskrifstofu ríkisins á ferðaskrifstofurekstri, sem lög vora fyrst sett um árið 1936, var í reynd felldur niður. Því nefni ég þetta hér, að það hefur verið einskonar lenska hjá ýmsum þeim sem starfa að ferðamálum að ásaka stjómvöld fyrir að hafa enga mótaða ferðamálastefnu. Ferðamálastefna stjómvalda er auðvitað mörkuð um leið og sett hafa verið lög um þessa starfsemi og það em nú 51 ár síðan það var fyrst gert. Ferðamálastefnan hefur síðan verið endurskoðuð í hvert skipti sem ný lög em sett. Auk þess er auðvitað hægt að taka ákvarðanir um sérstakt átak í ferðamálum eða framkvæmdir í þeim innan gildandi laga hverju sinni. Það gerði núverandi samgönguráð- herra, Matthías Bjamason, þegar hann fól Ferðamálaráði að vinna á grundvelli skýrslu um ferðamál á Islandi frá árinu 1983. Stefnt var einnig að því að græna skýrslan sem ég minntist á hér áðan verði grundvöllur að frekari stefnu- mörkun í ferðamálum. Það er því að mínu mati engin skortur á ferðamálastefnu eða stefnu- mörkun í ferðamálum. Hitt er svo allt annað mál að ýmsum þykir að betur mætti gera og að

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.