Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 29

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 29
29 Islcipulagsmáll 8. Borin er virðing fyrir eðlisbragði og næringarefnum hráefna. 9. Matseðlar eru stuttir og breytilegir eftir árstíðum og fáanlegum hráefnum, helzt hreinir matseðlar dagsins. 10. Eldamennskan tekur tillit til staðbundinna hráefna og hefða. Þessi tíu atriði eru stíll nútímans. Allir heimsfrægir kokkar eru á þessari línu. Hún er elda- mennska nútímans, en er samt engin dægurfluga, sem kemur og fer. Hún felur í sér varanlega breytingu á viðhorfi fólks til þess, sem það lætur ofan í sig. Tímarit á borð við Newsweek og Economist hafa nylega verið með hana sem forsíðuefni hjá sér. Áhugi nútímafólks á heilsufari sínu leiðir beint til hinnar nyju, frönsku línu. Menntað fólk hafnar offitu, kransæðastíflu og krabbameini. Við munum verða vör við þetta í auknum mæli hjá fólki, sem sækir ísland heim, ekki sízt hjá viðskiptafóli og ráðstefnugestum. Við erum svo heppin hér á landi, að hafa hráefni, sem nyja línan hampar. Það er fiskurinn, beint úr sjónum. Vægilega eldaðir sjávarréttir, ekki gratineraðir, heldur gufusoðnir eða grillaðir, eru okkar helzta tromp á þessu sviði. Þeir fara vel í maga og eru í samræmi við vilja og þarfir nútímafólks. Lambakjötið okkar er hins vegar alvarlegt vandamál. Við erum einir í heiminum um að telja fóðurkáisalin vegalömb vera eins konar villibráð. Enda sýnist mér, að þeir útlendingar, sem ég hef haft afskipti af hér á landi, taki vægilega eldaðan fisk fram yfir lambakjöt. En því verður víst seint breytt, því að gildandi stefna ríkisrekstrar í hinum hefðbundna landbúnaði er traustari í sessi en nokkru sinni fyrr. Opinber gagnrýni á íslenzka veitingamennsku er mikils virði. Hún veitir aðhald, sem er nauðsynlegt á þessu sviði eins og öðrum. Því miður er ég nokkum veginn hinn eini, sem hef, með hléum þó, haldið úti dálkum um þetta efni í allmörg ár. Ég held, að þau skrif hafi verið til góðs, en auðvitað væri fjölbreyttara og betra, að fleiri legðu skipulega hönd á þann plóg. íslenzk veitingamennska hefur öll skilyrði að mæta vaxandi ferða- mannastraumi og auka hróður landsins sem ferðamannalands. Þau atriði, sem ég og aðrir hafa gagnrýnt, em yfirleitt þess eðlis, að tiltölulega auðvelt ætti að vera að bæta um betur. Ég tel mikilvægast í þessu efni, að Hótel- og veitingaskólinn fái mun betri starfsskilyrði en verið hafa og að hann fáist til að taka á þeim göllum íslenzkrar veitinga- mennsku, sem ég hef nefnt. Ef hann er fáanlegur til þess, er æskilegt, að hann starfi ekki aðeins sem forskóli fyrir starf, heldur einnig sem símennt- unarskóli, er leggi áherzlu á námskeið fyrir áður útskrifaða fagmenn. k A.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.