Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 32

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 32
32 Sk'ipulagsmál er þarf ekki að koma mönnum á óvart, að höfuðborgarsvæðið gegni kannski fyrst og fremst hlutverki umferðarmiðstöðvar fyrir landsbyggðina. Það er hins vegar mín skoðun, að höfuðborgarsvæðið hafi upp á tiltölulega lítið að bjóða, þeim ferðamönnum, sem hafa áhuga á borgarumhverfi. Þetta á þó sérstaklega við um sumarmán- uðina þegar svo lítið er um að vera, að jafnvel tiltölulega ómerkilegar vörusýningar draga til sín tugi þúsunda gesta. Það er að vísu rétt, að hótelin eru nokkuð góð og veitingastöðum, sem bjóða upp á ágætan mat, hefur fjölgað mikið. Jafnframt eigum við íslendingar sjálfsagt met hvað varðar fjölda diskóteka miðað við fólksfjölda. Sú spurning vaknar hins vegar hvað ferðamaðurinn eigi að gera yfir daginn. Samkvæmt reynslu minni tekur það ferðamann einn til tvo daga að sjá það markverðasta á höfuðborgar- svæðinu, eftir það er kominn tími til að bregða sér út á land. Þetta þyrfti þó ekki að vera þannig og ættu t.d. þeir ferðamenn, sem áhuga hafa á listum og menningu að geta eytt þó noklorum tíma á höfuðborgarsvæðinu, án þess að láta sér leiðast. En það er erfitt fyrir erlenda ferðamanninn að skoða söfnin vegna takmarkaðs opnunartíma þeirra og ef ferðamaður er hér á þeim tíma þegar verið er að sýna

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.