Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 13
Isk'ipulagsmáll Þórarinn Jón Magnússon: FERÐAMÁL í HAFNARFIRÐI Það er nú liðið eitt ár frá því undirritaður gerði það að tillögu sinni í bæjarstjóm Hafnarfjarðar, að komið yrði á laggirnar Ferðamálanefnd í Hafnarfirði. Tillagan var samþykkt samstund- is af öllum bæjarfulltrúum. Stofnun Ferðamálanefndar í Hafnarfirði vakti óneitanlega athygli í bænum og var ekki laust við að nokkurrar undrunar gættí fyrst í stað. Það virtist nefnilega ekki hafa hvarflað að ykja mörg- um bæjarbúum, að Hafnarfjörður gæti átt einhveija framtíð fyrir sér sem ferðamannabær. Það verður þó að segjast, að á þessum mánuðum sem liðnir eru frá stofnun nefndarinnar hefur gætt mikils og vaxandi áhuga á málinu. Þess gætir í skrifum bæjarblaðanna, öllum þeim ábendingum, sem nefndinni hafa borist og yfirleitt alls staðar þar sem ferðamál hefur borið á góma á mannamótum í Firðinum. Hefur það vitaskuld gefið nefnd- inni byr undir báða vængi. Ástæðan fyrir undrun einstakra bæjarbúa var sú, að verið var að stofna ferðamálanefnd í bæ þar sem hvorki væri að finna tjaldstæði eða hótel. Eins var svo að skilja á sumum hveijum, að það byggðarlag, sem hvorki gætí státað af goshver eða fossi, aldagömlum þingstað eða eld- spúandi eyju, ætti ekkert erindi í ferðamannabransann. Þannig hafa líka fleiri á höfuðborgar- svæðinu hugsað alltof lengi. En er nema eðlilegt að þessarar minnimáttarkenndar verði vart. Bróðurparturinn af þeim ferða- mönnum, sem til landsins koma spyrja strax um leiðina að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum. Hvers vegna? Jú, vegna þess, að í áraraðir hefur helst mátt skilja auglysingar og ferðabæklinga héðan á þann veg, að ísland væri nánast mannlaus eyja þar sem annað væri ekki að hafa en rútuferðir frá flugvellinum að áðumefndum stöðum og öðrum eins. Vitaskuld eigum við að vera stolt af þeirri náttúrufegurð, sem Island býr yfir en ef við viljum fá erlenda ferðamenn tíl að staldra við fáeinar klukkustundir eða jafnvel nokkra daga á höfuð- borgarsvæðinu verðum við að snúa okkur að því að auglýsa þetta líflega byggðarlag um leið og óbyggðirnar. Eins verðum við að gera átak í að auka skilning íbúa höfuðborgarsvæðisins á gildi þess að hefta för túristanna út á landsbyggðina með því að vekja áhuga ferðamannanna á því sem höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða. Bæta það sem bæta þarf með fjölgun vegvísa og samræm- ingu leiðakerfis strætisvagna um höfuðborgarsvæðið til að eitthvað sé nefnt. Sættum okkur ekki við að Reykjavík gegni aðeins áfram hlutverki umferðamiðstöðvar heldur fái hún tækifæri til að hirða sinn hluta þess gjaldeyris, sem erlendir ferðamenn bera með sér til landsins. Gjaldeyri, sem þeir oft á tíðum hafa að mestum hluta með sér á brott aftur tíl síns heimalands vegna þess einfald- lega, að það gefist ekki tækifæri til að eyða þeim hérlendis. Við vitum að sumar ferðaskrif- stofur haga móttöku ferðamanna þannig að þeir eigi nánast enga viðdvöl á höfuðborgarsvæðinu. Mun ekki vera óalgengt, að hópum útlendinga sem hingað koma í vikuferðir sé potað strax upp í hópferðabifreiðar sem aka með þá tafarlaust út á land og þeim svo ekki skilað í bæinn aftur fyrr en fáeinum klukku- stundum fyrir brottför. Veitinga- staðir, verslanir og aðrir þeir þjónustuaðilar á höfuðborgar- svæðinu, sem væru meira en reiðubúnir að hafa af þessu fólki nokkurn gjaldeyri, fá ekki minnsta tækifæri til að hafa sig í frammi.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.