Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 40

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 40
I SKipTTIagsmál | þjónustustofnanir eru áætlaðar þessar: Verslunar- og þjónustu- rými samtals 5000 fermetrar, heilsugæslustöð, kirkja, safn- aðarheimili og veitingahús. Þijár dagvistarstofnanir og gæsluvöllur eru í hverfinu. Foldaskóli er sameiginlegur fyrir eldri árganga bama í öllum þrem hverfunum. I skólanum verður hverfisbókasafn skóladagheimili og félagsmið- stöð. Bensínstöð með tilheyrandi þjónustu er í hverfinu. Skipulagshöfundar Foldahverfis voru arkitektamir Hilmar Ólafs- son og Hrafnkell Thorlacíus og samstarfsmenn Aldís Norðfjörð arkitekt, Björn J. Emilsson tæknifræðingur, Njörður Geirdal arkitekt og Þormóður Sveinsson arkitekt. Hamrahverfi. Hverfið er á Gufuneshöfða vestan Folda- hverfis og er nú í hraðri uppbyggingu. Heildarstærð er um 34 ha. að meðtöldum lóðum, götum, þjónustusvæði og grænum svæðum. Áætlað er að halda samkeppni um skipulag 8 ha. svæðis norðan Lokinhamra. Helstu íbúðagerðir eru: 151 einbýlishús, 46 raðhús, 73 keðjuhús og 150 fbúðir í fjölbýli þarmeð taldir verkamanna- bústaðir. Samtals 420 íbúðir. Áætlaður íbúafjöldi er um 1300 manns. Helstu þjónustustofnanir eru áædaðar nærmiðstöð með einni til fjórum verslunum, tvö dag- heimili, barnaskóli með 6 bekkjardeildum, íbúðir fyrir aldraða og bensínstöð. Skipulagshöfundur Hamrahverfis er Knútur Jeppesen arkitekt og samstarfsmenn Helga Gunnars- dóttir arkitekt og Kristján Ólason arkitekt. Brekkuhverfi. Frumdrög að deiliskipulagi þessa hverfis liggja nú fyrir. Skipulagssvæðið á Keldnaholti er um 38 ha. að stærð. Það afmarkast af legu nýrra tengibrauta að norðan og af landi í eigu ríkisins á Keldnaholti aðaustan. Dalverpi liggur ámilh Folda- og Brekkuhveifis. Hlutí af byggð á svæðinu mun liggja í 40-90 m. hæð yfir sjó eða nokkru hærra en byggð í hinum Grafarvogshverfunum. Landinu hallar í norður, suður og vestur og hggur meirihluti þess í haha. "Keldnaskyggnir" er áberandi kambur vestan í Keldnaholti og helsta séreinkenni svæðisins. Þaðan er mikið útsýni í allar áttir og grösugar brekkur niður að Grafarvogi. Svæðið er víða grasi gróið en grýtt og efst á Keldnaholti eru melar. Ríkjandi vindáttir eru aust-og suðaust- lægar. í Brekkuhverfi er stefnt að blandaðri byggð sambýlis-og sérbýlishúsa með nærþjónustu. Aðra þjónustu s.s. heilsugæslu munu íbúar sækja í hverfa- miðstöð Foldahverfis. Aðkoma að hverfinu verður um tengibraut frá Vesturlandsvegi í austri og um Vetrarbraut í norðri, sem er tengibraut norðan Grafarvogs- hverfanna. Strætisvagn ekur nú um Fjahkonuveg í Foldahverfi. Byggðin umlykur Skyggni, útsýnis- og útivistarstað í miðju svæðinu. Safngata hggur norðan við Keldnaholt og tengir hverfið aðliggjandi umferðaræðum og minnkar þannig gegnumumferð. Strætisvagn mun aka um hluta götunnar með endastöð við Rannsóknastofnanir á Keldna- holti. Frá safngötunni ganga íbúðagötur inn í íbúða- og þjónustusvæðin. Efst á Keldna- holtí er nokkurs konar þorp lítilla stakstæðra húsa en húsagötur eru lagðar í hring umhverfis holtið eftir landinu. Húsagerðir verða fjölbreyttar, fjölbýli í 2-3 hæða húsum, háhýsi, raðhús, keðjuhús, parhús og mismundandi gerðir einbýlis- húsa. Nærmiðstöð með 1-4 verslunum, dagheimili, leikskóla og gæsluvelli er staðsett mið- svæðis í góðum tengslum við gangandi og akandi umferð. Bamaskóli er vestar á sléttara landi. Stígakerfi tengir hverfa- hlutana saman og einnig hverfaþjónustu og útívist. Gert er ráð fyrir íþróttaaðstöðu á norðvesturhluta svæðisins. Hún tengist útivistarsvæði sem nær frá Skyggni niður að Grafarvogi. Svæðið er tilvalið til útivistar vegna skjóls og náttúrufegurðar. Norðan við íþróttasvæðið og Vetrarbraut er fyrirhuguð kirkja á Hallsholti. í Borgarholti norðan Grafar- vogshverfanna og vestan Gufuneskirkjugarðs verða næstu íbúðasvæði Reykjavíkur eftir að Grafarvogshverfin verða full- byggð. Skipulagshöfundar Brekku- hverfis eru arkitektamir Þórarinn Þórarinsson og Eghl Guðmunds- son og samstarfsmenn Kristín Garðarsdóttir og Baldur Svavarsson arkitektar.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.