Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 9

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 9
sk'ipulagsmál 9 ómetanlegu landkynningar, sem ferðir Forseta íslands hafa haft og vakið hafa ómælda athygli á landi okkar og þjóð. Leiðtogafund- urinn í október 1986 var einnig, m.a. vegna þess^hve vel var að honum staðið af íslendinga hálfu, meiri og betri landkynning en nokkur hefði þorað að vonast eftir fyrir fram. Þessi land- kynning á enn eftir að skila sér í auknum ferðamannastraumi og gerir það örugglega á þessu og næstu árum. Vorið 1983 var hafin bygging flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli, sem nú hefur verið tekin í notkun. Hygg ég að allir geti verið sammála um að með til- komu hennar er stigið enn eitt stórt skref til bættrar aðstöðu fyrir erlenda og íslenska ferðamenn. Hér hefur verið stiklað á stóru og aðeins getið nokkurra þátta, sem menn vilja gjaman gleyma, þegar rætt er um uppbyggingu íslenskra ferðamála og þátt ríkisvaldsins í þeim. En hér eins og alls staðar annars staðar er það fyrst og fremst áhugi, dugnaður og þrautseigja einstaklinganna sem lyftir grettistökunum. Ég hef í þessu stutta ávarpi ekki fjallað sérstaklega um ferðamál á höfuðborgarsvæðinu. Það gera þeir sem hér koma á eftir. Ég vil þó undirstrika, að hér brotnar bylgjan fyrst og fremst, hvort sem um er að ræða innlenda eða erlenda ferðamenn. Fjöldinn allur af erlendum ferðamönnum, fyrst og fremst þeir sem eru í embættis- eða viðskiptaerindum, fara lítið sem ekkert út af þessu svæði. Það er okkur því enn meiri hvatning til að vinna að því að hér á höfuðborgarsvæðinu sé sem best samvinna um móttöku erlendra ferðamanna og allar aðgerðir í því efni samræmdar, jafnframt því sem framtíðarstefna í ferðamálum ✓ verði mörkuð. Eg fagna því þessari ráðstefnu sérstaklega og vona að hún verði undanfari nýs átaks í ferðamálum á höfuð- borgarsvæðinu.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.