Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 12

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 12
|5kiínTispmán eftir hótelrymi varð meiri en framboðið og þá tóku Loft- leiðamenn sig til og reistu fyrsta áfanga Hótels Loftleiða. Þessi starfsemi fyrirtækisins hafði mikil áhrif á þróun og vöxt ferða- mannaþjónustu í landinu, sem varla var fyrir hendi áður. Þróun ferðamála og samgöngubóta bæði innanlands og milli landa er svo samofin að ekki verður skilið þar á milli. Þessi saga synir að með þessari áætlun sinni hittu Loft- leiðamenn naglann á höfuðið og þegar áætlun og góð skipu- lagning fer saman lætur árang- urinn ekki á sér standa. Þrátt fyrir mikla og fjölþætta ferðaþjónustu á höfuðborgar- svæðinu eru örugglega margir möguleikar ónyttir. Beita þarf öllum tiltækum ráðum til þess að lengja ferðamannatímann og laða fleiri að utan mesta annatímans. Ljóst er að minni sveitarfélögin á svæðinu hafa ekki náð til sín æskilegum hluta viðskiptanna, sem er þeim þó nauðsynlegt til að auka fjölbreytnina í atvinnu- lífinu, en möguleikarnir eru margir sem þessi atvinnugrein býður upp á. Þegar rætt er um ferðamál og ferðamálastefnu eru umhverfis- málin þar órjúfanlegur þáttur. Huga þarf enn frekar að því hvemig best er að vemda landið án þess að loka því. Auka þarf til muna áróður meðal fólks um hvemig það getur best umgengist náttúm landsins. Efla þarf tengsl markhópa á höfuðborgarsvæðinu varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu, bæði við innlenda og erlenda ferðamenn. Tölulegar staðreynd- ir eru fáar um vægi ferðamála varðandi beina og óbeina at- vinnusköpun. Áherslu ber að leggja á að fram komi opinber stefna varðandi ferðaþjónustuna og að henni verði veittur meiri stuðningur.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.