Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 42

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 42
42 SKijnrmjnrrái Athugasemdir við grein Ásgeirs Jóhannessonar í SKIPULAGSMÁLUM 1-2/87 : 'íbúðir aldraðra. Nýjar skipuiagshugmyndir - sjálfsákvörðunarréttur aldraðra.' Grein sú, sem vísað er til eftir Asgeir Jóhannesson um íbúðir aldraðra, er viðbót við greinar um málefni aldraðra í 1. tölublaði Skipulagsmála á síðasta ári. Ásgeir lysir í grein sinni hvemig Sunnuhlíðarsamtökin í samvinnu við Kópavogsbæ og Búnaðar- bankann geta byggt 40 íbúðir fyrir aldraða á einu ári. Ekld er í fljótu bragði hægt að sjá hvort þetta geti orðið almennt eða hvort það sé eðlilegt hlutfall að byggja með þessum hætti 40 íbúðir á ári í 15000 manna bæ. Ef svo er þá þyðir það að um 350 íbúðir væru byggðar árlega á höfuðborgar- svæðinu með þessum hætti; er það um þriðjungur íbúða sem byggður er á svæðinu (meðaltal áranna 1976-1983: 1035 íbúðir á ári). Að byggja 350 íbúðir á ári fyrir aldraða á höfuðborgarsvæðinu með sömu eða svipuðum aðferð- um og Sunnuhlíðarsamtökin má ætla nokkuð bjartsynt, a.m.k. miðað við núverandi húsnæðis- lánapólitík. En jafnvel mun lægri tölur leiða til breyttra viðhorfa í skipulagsmálum þar sem slíkar íbúðir fyrir aldraða gera aðrar kröfur til staðsetningar en hefðbundin íbúðarbyggð eins og Ásgeir segir í niðurlagi greinar sinnar. Þessi niðurstaða er umhugsunarefni fyrir alla þá sem með skipulagsmál fara og jafnvel þó hlutfallið sé töluvert innan við þriðjung. Hvort sú leið, sem Sunnu- hlíðarsamtökin í Kópavogi hafa farið, verður ofan á eða hvort hún er jafnvel æskileg þarf nánari athugunar við. Afleiðingamar, sem það getur haft að taka upp einhverja sérstaka stefnu í húsnæðismálum aldraðra (og annarra), eru margvíslegar og þá helst skipulagslegar en einnig félagslegar. Byggingarðnaðurinn mun og hafa verulegra hagsmuna að gæta. Þorsteinn Þorsteinsson.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.