Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 18

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 18
18 sk'ipulagsmál æ 'S ^ S i i * * ^ j§ Æ " SÍ% 3 w % | i1 J/ \ ] 11»' ,>;iT lands eða héraðs. Sé þetta mat mitt rétt fæ ég ekki betur séð en að á höfuðborgar- svæðinu sé vænlegast að byggja upp það sem til þarf til að þessi þáttur ferðamannaþjónustu verði að veruleika. Á ymsum stöðum á svæðinu eru góðir möguleikar á að byggja upp "sumarhúsahverfi" sem staðið geta ein og sér en verða jafnframt í beinum tengsl- um við svæði þar sem yfir helmingur þjóðarinnar býr og þar sem unnt er að bjóða upp á alla hugsanlega frístundaiðju að vali hvers og eins, auks þess sem greiður aðgangur er að allri þeirri þjónustu sem boðið er upp á í núverandi skipulagi á þjónustu við erlenda ferðamenn. Mér er nær að halda að þessi þáttur ferðamannaþjónustu á ís- landi væri hér til staðar og hefði svo verið um nokkurn tíma ef ekki hefði komið til að laun- þegasamtök á íslandi tóku sig til og byggðu upp sínar eigin orlofsbúðir sem öllum er kunnugt um. Sú uppbygging, svo góð sem hún var, hefur að mínu mati kippt fótunum undan þessum þætti, sem ella er næsta víst að framsýnir athafnamenn á sviði ferðamála hefðu glímt við og komið á laggirnar fyrir bæði innlenda og erlenda ferðamenn fyrir löngu síðan. Ég gat þess hér að framan að sveitarfélögin hér á höfuð- borgarsvæðinu, að Reykjavík undanskilinni, nytu sáralítils af þeim ferðamannastraumi sem árlega fer um landið, hvort heldur þar fara útlendingar eða íslend- ingar. Þrátt fyrir að sveitar- stjómarmenn á þessu svæði ræði þessi mál af og til hef ég ekki orðið var við ýkja mikinn þunga í þeirri umræðu, og margt þykir mér benda til að sveitarfélögin hafi ekki verið í stakk búin til að taka á þessum málaflokki eða að raunverulegur áhugi hafi ekki verið fyrir hendi. Ferðamannaþjónusta er áhættu- samur atvinnuvegur og það sérhæfður að mínu mati að sveitarstjómamenn geta ekki með nokkrum hætti náð neinum árangri á þessu sviði einir og sér. Til að árangur náist þarf samspil margra aðila og ég tel að allt frurnkvæði þurfi að liggja hjá atvinnugreininni sjálfri. Þeirra er þekkingin, reynslan og áhættan. Hins vegar fer ekki hjá því að aðgerðir eða aðgerðarleysi sveitarstjóma geta haft töluverð áhrif á gang mála, og sama gildir einnig um ríkisvaldið í þessu sambandi. Sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu, og þá einkum Garða-

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.