Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 8
8
sk'ípulagsmál
Frá feráamálaráóstefnu höfuóborgarsvœólsins 1987 - Ólafur Stelnar Valdlmarsson ráóuneytisstjóri í rceóustóli.
stefnan mætti vera öðruvísi en
hún er. Þar stangast hins vegar
verulega á sjónarmið þeirra sem
vilja sem mesta aukningu
ferðamanna til landsins og hinna,
sem vegna náttúruverndar-
sjónarmiða fyrst og fremst, vilja
sem minnsta aukningu á
erlendum ferðamönnum. Hlut-
verk stjórnvalda er auðvitað að
sætta þessi ólíku sjónarmið og
leita að leið sem flestir geta fellt
sig við.
Ferðamál sem atvinnugrein eru
nú í örari þróun en flestar aðrar
atvinnugreinar hér á landi og
horfur eru á að svo verði um
langa ffamtíð. Erlendis er talið að
aukning í ferðaþjónustu muni
nema um 5% árlega fram til
næstu aldamóta og að ferða-
þjónusta muni þá verða ein
umfangsmesta atvinnugreinin.
Þróunin hér á landi er nú miklu
örari en þessi tala gefur til kynna.
En okkur hættir oft til að gleyma
því að jafnframt mikilli fjölgun
ferðamanna hefur mikið verið
gert á undanförnum árum til að
mæta aukinni þjónustu við þá.
Eftir nokkuð langa stöðnun hefur
fjöldi erlendra ferðamanna til
Islands aukist gífurlega undan-
farin ár. Þannig komu 72.600
ferðamenn til landsins árið 1982,
en á síðasta ári urðu þeir
113.500. Þetta er aukning um
tæplega 41.000 ferðamenn eða
56%.
Aðstaða til að taka á móti þessum
ferðamönnum, svo og jafnframt
íslenskum ferðamönnum, hefur
batnað verulega á sama tímabili.
Þannig hefur fjöldi herbergja á
heilsárshótelum aukist yfir 40%
frá árinu 1983 og fjöldi herbergja
á sumarhótelum yfir 30%. Er þá
aukning allrar annarrar gistingar
ótalin, en hún hefur aukist á
öllum sviðum, svo sem gisti-
aðstaða á sveitabæjum og á lidum
gistiheimilum í Reykjavík, svo að
dæmi séu nefnd. A undanfömum
árum hafa verið teknir í notkun
myndarlegir gisti- og veitinga-
staðir víða um land og hér í
Reykjavík verða tekin í notkun
glæsileg ny hótel á þessu og
næstu árum.
Ferðamálasjóði hefur vaxið mjög
fiskur um hrygg á undanfömum
árum við að sinna lánsfjárþörf
þessara nyju staða, en þar sem
hann hefur skort bolmagn hafa
aðrir íjárfestingalánasjóðir komið
til aðstoðar. Samþykkt lán úr
sjóðnum urðu hærri á síðasta ári
en nokkru sinni fyrr eða 93
milljónir króna.
Margir samverkandi þættir hafa
stuðlað að þeirri miklu aukningu
erlendra ferðamanna sem hefur
orðið undanfarin ár. Hér er sér-
staklega vert að geta þeirrar