Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1987, Blaðsíða 37
skipulagsmál
37
BJarni Reynarsson,
delldarstjóri aóalsklpuiags,
Borgarskipulag Reykjavíkur:
GRAFARVOGSHVERFIN
Inngangur.
Mikið hefur verið umleikis í
skipulagsmálum Reykjavíkiu-
undanfarin 3-4 ár samfara mikilli
þenslu í byggingariðnaðinum og
á öðram sviðum atvinnulífsins.
Á Borgarskipulagi hefur verið
unnið að nýju aðalskipulagi fyrir
Reykjavík, "Aðalskipulag
Reykjavíkur 1984 - 2004". Var
það í formlegri kynningu fyrir
almenning í Byggingaþjónust-
unni Hallveigarstíg 1 í sumar.
Einnig hefur verið unnið að
tillögum að nýju skipulagsstigi,
svokölluðu "Hverfaskipulagi",
sem er hugsað sem millistig milli
aðalskipulags og deiliskipulags.
Hverfaskipulag á að auðvelda
almenningi að kynna sér áætlanir
borgaryfirvalda um breytíngar á
byggð og umhverfi hvers og eins.
Fyrir utan þessar langtímaáætl-
anir hefur aðal áherslan verið á
skipulagsvinnu í eldri hverfum
Reykjavíkur. Sem dæmi má nefna
deiliskipulag Kvosarinnar og
deiliskipulag Skúlagötu-
svæðisins og skipulag nýrra
hverfa í Grafarvogi.
Grafarvogshverfin.
í júní 1982 ákváðu borgar-
yfirvöld að fallið skyldi ffá fyrri
hugmyndum um skipulag s.k.
"Austursvæða" Reykjavíkur. I
stað byggðar við Rauðavatn
skyldu næstu íbúðahverfi borgar-
innar rísa norðan Grafarvogs.
í janúar 1983 gerðu Reykja-
víkurborg og ríkissjóður með sér
samkomulag (Keldnasamkomu-
lagið) um makaskipti á landi
norðan Grafarvogs. Með þessu
tvennu var í raun tekið af skarið
um það að byggðin í Reykjavík
muni á næstu áratugum þróast til
norðurs, bæði íbúðabyggð og
athafnahverfi.
í Grafarvogi verða þrjú
íbúðahverfi, Hamra-, Folda-, og
Brekkuhverfi. Foldahverfið
byggðist fyrst; deiliskipulag að
hverfinu var samþykkt í áföngum
árið 1983 ogl984. Deiliskipulag
Hamrahverfis var samþykkt árið
1985 og 1986 hófst skipulagning
Brekkuhverfis. Áætlað er að
lóðaúthlutun úr Brekkuhverfi
hefjist fyrir áramót, en öllum
lóðum hefur nú verið úthlutað í
hinum Grafarvogshverfunum.
Forsögn fyrir deiliskipulag íbúða-
hverfanna í Grafarvogi frá 1982
miðaði að því að auka framboð á
lóðum fyrir einbýlishús. Stefnt
var að því að þar risi hverfi þar
sem 55% íbúðanna yrðu
einbýlishús, 30% í raðhúsum og
15% í fjölbýlishúsum en það er
mun dreifðari byggð en annars
staðar í borginni.
Þetta hlutfall breyttist nokkuð,
bæði í skipulagsvinnunni sjálfri
og vegna óska sem komu fram
eftir að forsögnin var samþykkt.
Eins og ffam kemur í meðfylgj-
andi töflu hefur hlutfall sérbýlis-
húsa lækkað en hlutfall fjöl-
býlishúsa aukist miðað við upp-
haflega forsögn. Áætlað er að
Grafarvogshverfin þijú verði
fullbyggð fyrir miðjan næsta
áratug.
Foldahverfi. Hverfið er elstí
hluti nýju byggðarinnar norðan
Grafarvogs og er ennþá í
uppbyggingu. Heildarstærð er
um 90 ha., að meðtöldum lóðum,
götum, þjónustu og grænum
svæðum. Skipting íbúða eftir
húsagerðum er þessi: 451
einbýlishús, 135 raðhús, 328
íbúðir í fjölbýli þar með taldir
verkamannabústaðir samtals 914
íbúðir. Áætlaður íbúafjöldi er
um 3.000 manns.
í Foldahverfi er fyrirhuguð
hverfamiðstöð sem þjóna mun
öllum hverfunum. Helstu