Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Qupperneq 20
INNGANGUR: Margar eldri kirkjur eru gallaðar hvað
varðar innra skipulag. Örðugt hefur reynst að sjá fyrir öllum
þörfum innan hins hefðbundna kirkjuskipulags, sem byggir á
kirkjuskipi með tumbyggingu við framgafl.
I kirkjuskipinu eða salnum hefur sjálf guðsþjónustugerðin
farið fram, en í tumby ggingunni hefur orðið að koma öllu öðm
fyrir, sem nauðsynlegt er til þess að kirkja geti talist þjóna
hlutverki sínu. Þar er átt við aðalinngang, anddyri, fatahengi,
snyrtingar og jafnvel aukaherbergi til ýmissa nota. Auk þess
var í tuminum oft stigi upp á söngloft. Það liggur í augum uppi,
að tuminn rúmar í fæstum tilvikum allt það, sem upp hefur
verið talið.
Reynt hefur verið að bregðast við vandanum á mismunandi
hátt og ýmsir viðbyggingarmöguleikar í kringum tuminn
verið reyndir.
Sóknamefnd Reykjahlíðarkirkju við Mývatn hefur ákveðið að
fara allnýstárlega leið í þessum efnum samkvæmt hugmynd
Gylfa Guðjónssonar arkitekts.
Fyrir dymm standa umfangsmiklar endurbætur og breytingar
á kirkjunni, sem nú er 30 ára gömul. Snyrtingar og fatahengi
hefur vantað í kirkjuna og mikil þrengsli hafa verið í anddyri.
Skort hefur aðstöðu fyrir fermingarböm svo og viðtals- og
brúðarherbergi.
Auk þess hefur kirkjuskipið lengi verið talið of lítið, einkum
við meiri háttar athafnir svo sem á stórhátíðum, við fermingar
og jarðarfarir.Nú tekur kirkjan um 100 gesti, en eftir breyting-
amar mun kirkjuskipið með góðu móti rúma um 150 manns.
Þá hefur skrúðhús verið ófullnægjandi og takmörkuð aðstaða
verið fyrir söngfólk niðri við kórinn.
Auk endurbóta á fyrmefndum atriðum stendur m. a. til að
einangra útveggi kirkjunnar og klæða hana með
múrklæðningu.
Endumýja þarf og lagnakerfi og bæta loftræstingu. Samfara
öllu þessu em viðamiklar lagfæringar innanhúss
nauðsynlegar.
Sögulegt yfirlit.Svo langt sem sögur og sagnir ná, hefur kirkja
verið í Reykjahlíð, og líklega ætíð á sama stað, þar sem
kirkjuhóll heitir.
Árið 1729 kom hraunflóð úr Leirhnúk og rann yfir og umhvef-
is bæinn, kringum kirkjuhólinn, en kirkjuna sakaði ekki. Hún
18
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG