Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Side 21
NORÐUR
hafði þó staðið örskammt frá bænum. Kirkjan í Reykjahlíð var
ávallt bændakirkja og eign jarðeigenda uns söfnuðurinn tók
við henni áriðl955. Árið 1876 var byggð kirkja í Reykjahlíð
úr höggnu grjóti og límd með kalki. Pétur Jónsson, þáverandi
eigandi og ábúandi jarðarinnar byggði kirkjuna.
Hleðslur þessarar kirkju standa enn innan kirkjugarðsins í
Reykjahlíð. Árið 1958 var hafist handa um byggingu þeirrar
kirkju, sem nú stendur í Reykjahlíð. Jóhannes Sigfinnsson
smiður og málari frá Grímsstöðum í Mývatnssveit hannaði
kirkjuna og og sá um smíði hennar. Kirkjan er annexía frá
Skútustöðum. Prestur er séra Öm Friðriksson.
Hugmynd arkitekts. Meginhugmynd arkitektsins er, að
Reykjahlíðarkirkja eftir fyrirhugaðar breytingar hafi ákveðna
sögulega skírskotun til umhverfisins og náttúruhamfaranna á
18. öld, þegar hraunstraumurinn staðnæmdist við
kirkjuhólinn, en þyrmdi kirkjunni sjálfri.Þannig gæti ný
Reykjahlíðarkirkja minnt á hverfulleik náttúruaflanna.
Kirkjuhóllinn fær ákveðna samsvörun í hringlaga formi
viðbyggingarinnar að framan. í þeirri byggingu er fordyri með
fatahengi, snyrtingu, fjölnýtiherbergi og geymslu. Lagt er til,
að unnið verði enn frekar með hraunhleðslum eins og gert
hefur verið í og að hluta til umhverfis kirkjugarðinn og
útveggir viðbygginganna því hugsaðir klæddir með
hraungrýtishellum.
Leitast er við að styrkja eitt aðalsérkenni kirkjunnar, þ.e.
kirkjutuminn, sem áhrifamikið hlið inn í helgidóminn bæði í
grunnmynd og útliti.
Stiginn upp á söngloftið er því fjarlægður úr tuminum og
færður inn í kirkjuskipið.
Jafnframt því er lögð áhersla á að viðhalda núverandi svipmóti
kirkjunnar eins og kostur er. Kirkjuskip er lengt til norðurs um
ca. fjóra metra.
Núverandi kór verður endurreistur og nýttur í fullri breidd, en
auk þess er gert ráð fyrir hliðarstúkum. I annarri er skrúðhús,
en hin getur ýmist þjónað sem viðbótarrými fyrir kirkjugesti
eða aðstaða fyrir orgel og söngfólk. Þar er einkum horft til
tónleikahalds.
Eftir sem áður er gert ráð fyrir söngloftinu á sínum fyrri stað,
en aðkoma að því er breytt eins og fram hefur komið.
Eftir breytingar gæti kirkjan rúmað í sætum 40 til 50 fleiri
19
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG