Arkitektúr og skipulag - 01.09.1989, Síða 62
Á Norðurlöndum er samningaskipulag algengast við endur-
byggingu miðborga og stærri þjónustukjama. Sem dæmi má
nefna Akerbrygge og V aterland í Osló og World Trade Center
í Stokkhólmi. Þessi tegund skipulags er ekki ný af nálinni. í
Bandaríkjunum hafa t.d. einkafyrirtæki skipulagt og byggt
fjölmörg íbúðahverfi og nýjar borgir á undanfömum ára-
tugum. Slíksamvinnakrefstbreyttravinnubragða,sem skipu-
lagsmenn og stjómmálamenn þurfa að finna farsælan farveg
fyrir.
I fagtímaritum, sérstaklega um arkitektúr, hafa hugtökin
„modemismi“ og „postmodemismi" verið mikið til umræðu á
undanfömum ámm. Hin heildræna samþætting og stýring í
skipulagi sem byggist á þjóðfélagslegum markmiðum er
beint afsprengi velferðarkerfis eftirstríðsáranna (modemismi).
En í „postmodemisma“ er áhersla lögð á einstaklinginn og
hönnun einstakra bygginga og götumynda. Hugmyndir em
iðulega sóttar til stflhugmynda og táknmynda úr fortíðinni.
„Modemsimi“ í skipulagi er því hugsun ofan frá og niður á
við, en „postmodemismi“ frá einstökum hlutum til heildar.
Að mati höfundar byggist skynsamleg skipulagsstefna ekki á
„ismum“ líðandi stundar, heldur á því að nýta það besta úr
hverri hugmyndabylgju sem gengur yfir og laga það
aðstæðum í okkar þjóðfélagi.
STJÓRN SKIPULAGSMÁLA Á NORÐURLÖNDUM
Á síðastliðnu ári var yfirlitsrit um skipulags- og byggingarlög
áNorðurlöndumgefiðútafNorrænuráðherranefndinni. Titill
ritsins er „Översikt och jamförandi analys av plan- och
byggnadslagsstiftningen i de nordiska landema". Höfundur
þess er finnskur lögfræðingur, Lauri Nordberg. Borgarskipu-
lag hefur látið þýða valda kafla úr bók Lauri. Þeim sem áhuga
hafa á þessari þýðingu geta snúið sér til Borgarskipulags.
Lauri fékk þetta verkefni árið 1981 frá Norrænu
ráðherranefndinni, en útgáfa ritsins dróst nokkuð vegna þess,
að höfundur beið eftir því að ný norsk skipulags- og bygg-
ingarlög tækju gildi 1985 og samskonar sænsk lög árið 1987.
Dönsk skipulagslög tóku gildi 1977 og skipulagslögin í
Finnlandi em í endurskoðun eins og þau íslensku.
Reyndarerhafin undirbúninguraðendurskoðun dönsku skipu-
lagslaganna frá 1977. I endurskoðuninni er gerð tillaga um
að stytta eldri lög úr 140 greinum í 40, færa vald frá
svæðaskipulagsstofnunum til sveitarfélaga, kynna almenningi
skipulagstillögur á fyrri stigum, einfalda deiliskipulagið og
fækka möguleikum á kæmm.
Reynslan af svæðisskipulagi hefur verið ærið misjöfn á
Norðurlöndum. Helstu vandkvæðin hafa tengst „ofstýringu"
svæðaskipulags yfir sveitarfélögum, þar sem reynt er að stýra
hve mikið er byggt af íbúðum og atvinnuhúsnæði í einstökum
sveitarfélögum. Það var m.a. vegna slíkra vandamála sem
svæðaskipulagsstofnun Kaupmannahafnarsvæðisins (Hoved-
stadsrádet) var lögð niður í ár.
Hér verður eingöngu fjallað um skipulag á sveitarfélagsstigi
þ.e. aðal-og deiliskipulag, en ekki landskipulag eða
svæðisskipulag.
AÐALSKIPULAG
Á Norðurlöndum hefur aðalskipulag (översiktsplan)
sveitarfélaganna styrkt stöðu sína í skipulagskerfinu og fengið
aukið vægi. Þetta á sérstaklega við eftir þær endurbætur sem
gerðar hafa verið á skipulagslögum. I öllum löndunum er
aðalskipulagið landnotkunarskipulag. í Noregi og íslandi er
aðalskipulag bindandi hvað varðar landnotkun. í Danmörku,
Svíþjóð og Finnlandi er aðalskipulagið eingöngu til
leiðbeiningar.
Með endurbótum á skipulagslögum á Norðurlöndum hefur
verið dregið mjög úr eftirliti ríkisvaldsins á aðalskipulagi
sveitarfélaga. Ríkið þarf þá hvorki að staðfesta né samþykkja
aðalskipulag. Það gegnir hins vegar því hlutverki að skera úr
um ágreiningsmál sem upp koma.
Uppbygging skipulagsmála er mjög svipuð í Danmörku og
Noregi. I báðum löndunum er megin reglan sú að
aðalskipulagið öðlast gildi án þess að vera samþykkt af
ríkisvaldinu. Mikilvægar undantekningar eru þó gerðar. I
báðum löndunum hefur yfirstjóm viðkomandi svæðis neitu-
narrétt. Ef sveitarfélag í sama amti eða fylki gerir athugasemdir
við aðalskipulagið ræður niðurstaða ráðuneytis um úrlausn
ágreiningsefnisins. í Danmörku er t.d. gerð undantekning frá
aðalreglunni þegar afmarkaðir hlutar sveitarfélags fara yfir
ákveðna nýtingu (1.1 ).í S víþjóð er ekki lengur haft eftirlit með
framfylgd aðalskipulags sveitarfélaga. I stað þess kemur
fagleg umsögn lénsstjómar meðan á afgreiðslu skipulagsins
stendur. I Finnlandi em sveitarfélög sjálfráð hvað varðar
staðfestingu aðalskipulags. ísland er því eina landið þar sem
ákveðið er í lögum að ráðherra skuli staðfesta aðalskipulag.
DEILISKIPULAG
Deiliskipulag er elsta gerð skipulags og byggist á eldri hefð
en nokkurt annað skipulag. Gmndvöllur hinnar nýju löggjafar
um deiliskipulag er að mestu leyti byggður á fyrri deiliskipu-
lagslögum eins og þau hafa verið mótuð í lögum og viðteknum
venjum. I samanburði við aðrar tegundir skipulags em
breytingar litlar. Einkennandi er þó fækkun tegunda skip-
ulags á deiliskipulagsstigi og einföldun skipulagskerfa.
Á Norðurlöndunum er deiliskipulag að öllu jöfnu samþykkt af
sveitarstjóm. í Danmörku er það samþykkt án skilyrða. I
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi geta veigaminni breytingar á
skipulagi verið fengnar undimefndum (skipulags- og bygg-
ingamefndum). Minnkandi stjóm ríkisins á deiliskipulagi er
einkennandi fyrir Norðurlönd. í Danmörku, Noregi og Svíþjóð
þarf ríkisvaldið að öllu jöfnu ekki að staðfesta deiliskipulag.
Undantekningar eru þó Finnland og ísland sem ekki hafa
endurskoðað nýlega sína skipulagslöggjöf. í Finnlandi skal
leggja deiliskipulag fyrir til staðfestingar. Samkvæmt skipu-
lagsreglugerð frá 1985 telst deiliskipulag hér á landi samþykkt
þegar það hefur verið samþykkt í sveitarstjóm og af skipu-
lagsstjóra ríkisins, en þessi málsmeðferð á sér þó enga stoð í
skipulagslögum. Ekki þarf að staðfesta deiliskipulag nema
um sé að ræða nýtt deiliskipulag í þegar byggðu hverfi. Þótt
ótrúlegt sé er ekki minnst á hugtakið deiliskipulag í skipu-
lagslögum.
Á Norðurlöndum hefur ríkisvaldið aðeins afskipti af deili-
skipulagi ef um ágreiningsmál er að ræða. Sem dæmi má
nefna að í Svíþjóð getur lénsstjórnin undir vissum
kringumstæðum, tekið deiliskipulag til umfjöllunar. Það er ef
hagsmunum ríkisins, nágrannasveitarfélags eða kröfum um
heilbrigði og öryggi hefur ekki verið fullnægt. Lénsstjóminni
er skylt að taka ákvörðun innan þriggja vikna.
NOKKUR NÝMÆLI
Helstu nýmæli seinustu árin við gerð
60
ARKITEKTÚR OG SKIPULAG