AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Page 45

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Page 45
og undirritaði samþykktir hans í mars 1994. Þar voru saman komnir 250 fulltrúar 113 borga í Evrópu. En aðalefni samþykktarinnar sem borgin undirritaði er að draga úr notkun einkabílsins í því skyni að auka gæði borgarumhverfisins. Ekki er talið að hægt sé að uppfylla kröfur einkabílsins um aukið umferðarrými. Lausnin á umferðarvanda borga felist í því að draga úr umferð einkabíla en ekki gera henni auðveldara fyrir. Vinnuhópar, sem borgin hefur tekið þátt í, vinna í þessa veru. AÐALSKIPULAG REYKJAVÍKUR 1994-2014 í ofannefndum anda er því verið að endurskoða umferðarþátt Aðalskipulags Reykjavíkurborgar um þessar mundir, eins og fram kom í grein dr. Bjarna Reynarssonar aðstoðarforstöðumanns Borgarskipu- lags í síðasta hefti þessa ágæta rits. Skipulagsnefnd hefur nú nýverið fjallað um tillögur Borgarskipulags um markmið og leiðir í umferðarþætti aðalskipulags og fallist á þær í megindráttum. Þá var jafnframt samþykkt að láta fara fram viðhorfskönnun meðal borgarbúa um það á hvern hátt fólkið í borginni kýs helst að ferðast, sérstaklega til og frá vinnu og skóla. Þessi könnun er að fara af stað og má vænta niður- staðna úr henni í upphafi næsta árs. En lítum aðeins á tillögurnar sem auðvitað geta tekið einhverjum breytingum í áframhaldandi vinnu. Fyrst er nauðsynlegt að gera sér í hugarlund hvernig höfuðborg við viljum í framtíðinni. Slík sýn hlýtur aó vera grundvöllur stefnumörkunar og hún auðveldar forgangsröðun framkvæmda. MARKMIÐ í UMFERÐARMÁLUM: 1. Að draga úr aukningu umferðar einkabíla. 2. Að fjölga farþegum SVR. 3. Að auka umferðaröryggi. 4. Að fækka umferðarslysum um 20% fram til ársins 2001. 5. Að draga úr áhrifum loft-, hávaða- og sjónmeng- unar frá umferð. Leiðir að þessum markmiðum: 1. Að draga úr aukningu umferðar einkabíla: ■ með aukinni fræðslu um áhrif umferðar á umhverfi. ■ með markvissri landnotkun til að draga úrferðaþörf. ■ með betra göngu- og hjólaumhverfi, s.s. stígum og vistlegra umhverfi. ■ með betri þjónustu SVR. ■ með því að auka ekki umferðarrýmd á núverandi gatnakerfi í innri hluta borgarinnar (vestan Kringlu- mýrarbrautar). ■ með því að sýna fram á kostnað sem hlýst af um- ferð. Bent hefur verið á að einn aðalumferðarvandi Reykja- víkur er umferðarþungi einkabifreiða í upphafi og við lok vinnudags. Komið hefur í Ijós að það er endalaust verk að greiða fyrir umferð einkabifreiðarinnar. Það kallar á sífellt meira fjármagn við að auka umferðar- rýmd og viðhald á götum. Fleiri bifreiðar á götunum leiða til fjölgunar umferðarslysa og hraður akstur einnig. Ef skipulag byggist fyrst og fremst á umferð einkabíla en ekki á almenningsvögnum og gangandi og hjólandi umferð þá þarf gífurlegt landrými undir umferðarmannvirki og stór flæmi undir bílastæði og mjög dýr bílastæði í þar til gerðum bílastæðahúsum. Eitt bílastæði neðanjarðar kostar u.þ.b. 1 milljón króna (svipað og eitt pláss á leikskóla) og kostnaður við rekstur þessara stæða er borginni mjög dýr. Afleið- ing af slíku skipulagi er svo dreifð byggð og um- hverfisleg, sjónræn og félagsleg áhrif sem engan veginn samræmast hugmyndum um vistvæna borg. Bent hefur verið á að stór og mikil umferðarmannvirki, s. s. mislæg gatnamót (gatnamót á tveimur hæðum) með öllu tilheyrandi, séu ekki æskileg inni í borgum. Glæsilegt nýtt umferðarmannvirki við Flöfðabakka á t. d. alls ekki heima nær miðborginni. Þar verður að finna aðrar lausnir. HVER ER VILJI BORGARBÚA? Borgarbúar eru mjög uppteknir af umferðarmálum. Á hverfafundum borgarstjóra sem jafnan eru mjög vel sóttir snerta flestar spurningar og ábendingar umferðarmál. Fólk hefur áhyggjur af mikilli umferð, óttast um börnin sín, finnst bæði hávaða- og loft- mengun vegna hennar erfið og þreytandi. Óskir um hraðahindranir, lokanir gatna, hljóðmanir og bættar almenningssamgöngur eru háværar og fólki finnst mörgu að verið sé að slíta hverfi í sundur með of stórum umferðarmannvirkjum. Dæmi um slíktert.d. í Voga - og Fleimahverfi, f Hlíðunum, í Þingholtunum. íbúarnir í Voga-og Heimahverfi hafa óskað eftir við- ræðum við borgaryfirvöld um möguleika á því að minnka umferð um Skeiðarvog og Álfheima vegna mikillar og hraðrar umferðar um þær götur sem börn- um er t.d. þó beint yfir í skóla. 43

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.