AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Side 46

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.1995, Side 46
MilKLABRAUT í STOKK? íbúar í nágrenni Miklubrautar efndu til málþings í maí sl. Þar var mikið fjölmenni og var aðalumræðuefnið auðvitað Miklabrautin. Gefið var út myndarlegt blað í framhaldi af fundinum sem ég ætla að leyfa mér að vitna í: „Þó mönnum yrði tíðrætt um gallana, - yfirþyrmandi þungi umferðar á þjóðvegi í þéttbýli rétt við íbúðir fólks er augljóslega hrein plága á heimilum þeirra sem við það þurfa að búa, - kom einnig fram að lega götunnar hefði á sínum tíma verið góð ákvörðun að mörgu leyti. En síaukin umferð krefst þess að menn bregðist við með nýjum ráðurn." í lokfundarins afhentu fundarmenn undirritaðri undir- skriftalista með áskorun frá 1142 einstaklingum um að Miklabrautin yrði lögð í stokk neðanjarðar frá Landspítala og austur fyrir Stakkahlíð. Nefnt var að ef hætt yrði við lagningu Fossvogsbrautar (sem rætt hefur verið um að sett yrði í stokk) og Hlíðarfótar þá væri hægt að flytja það fjármagn, sem þar sparaðist, í þessa framkvæmd. Þessi leið er að sjálfsögðu mjög kostnaðarsöm en hún myndi gjörbreyta öllu umhverfi í Hlíðunum og Norðurmýrinni og tengja sunnanverðar Hlíðarnar við útivistarsvæðið á Miklatúni. Þessi dæmi eru nefnd hér til fróðleiks, en þau sýna svo ekki verður um villst, að fólk vill breyttar áherslur. Á það ber okkur kjörnum fulltrúum að hlusta. VIÐHORFSKÖNNUN UM UMFERÐ OG UM- HVERFI Til eru nýlegar niðurstöður úr viðhorfskönnun um umferð og umhverfi sem unnin var af IMG Stjórnunar- ráðgjöf fyrir Borgarskipulag og Borgarverkfræðing Reykjavíkur. Þar kemur m.a. fram að 75% af heild (90% af þeim sem ekki nota bíl) telja æskilegt að minnka umferð einkabíla í Reykjavík. Aðeins 1% svarar „veit ekki“. Þegar spurt var hver væri heppi- legasta leiðin til þess að draga úr notkun bílsins voru flest svaranna um að bæta samgöngur/þjónustu hjá SVR eða fjórðungur og næstflestir merktu við „annað“ og nefndu til frekari skýringar: takmörkun bílafjölda á heimili, betri göngustíga, hækkun bensíns, áróður um mengun, óþarft að minnka bílanotkun, reka áróð- ur fyrir að nota SVR, hjóla meira, ganga, breytilegan vinnutíma, banna umferð um ákveðin svæði á anna- tímum, hafa bíla dýra o.fl. HVAÐ MERKIR „AÐ DRAGA ÚR UMFERÐAR- ÞÖRF“? Til eru ýmsar leiðir til að draga úr þörf fyrir ferðir í bíl. Besta leiðin er auðvitað að hugsa fyrir því í skipulagi 44

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.