AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 13
i a.s.l.
LEGEND
Tholeiite lavas wiih thin interbeds
Thin porous iholeiite lavas with occasional thin interbeds
Porphyritic lavas with thin interbeds
Thick sedimentary interbecs
hafði Alþingi samþykkt lög um að heimila einka-
fyrirtæki að standa að framkvæmdinni og að
standa straum af kostnaði, bæði að greiða niður
fjárfestinguna svo og að standa undir vaxtagreiðsl-
um og rekstri með innheimtu veggjalds í allt að 20
ár frá opnun ganganna. Má segja að þá hafi hjólin
verið komin af stað. Spölur hóf undirbúning þegar
samið hafði verið við stjórnvöld um göngin á
grundvelli fyrrnefndra laga frá Alþingi. Hlutafé
Spalar var í upphafi upp á 100 mkr. Að undir-
búningsrannsóknum komu íslenskir jarðfræðingar,
m.a. frá Vegagerðinni, Orkustofnun og Jarðtækni-
stofunni. Spölur hf. réð til sín ráðgjafafyrirtæki,
O.T. Blindheim í Noregi, til að leggja á ráðin um
hugmyndir að útboðsformi og hönnunarforsendur.
Fjármálalegir ráðgjafar voru einnig Háskóli íslands
og breskt fjármálafyrirtæki. Fyrir valinu varð svo-
nefnd skilaverktaka, en það er eitt af þeim útboðs-
formum, sem rutt hafa sér til rúms á undanförnum
árum víða erlendis undir skammstöfuninni BOT
(Build - Operate - Transfer) en einnig undir heitinu
Modified FIDIC Turn-Key Project. Fjölmörg tilbrigði
eru af þessu útboðsformi og verksamningi, sem af
leiðir, og hefur verið nefnt skilaverktaka innan
vegagerðargeirans en einnig hefur verið notað
heitið einkaframkvæmd. Munurinn á þessu tvennu
er ekki afgerandi og var æskilegt að málhagir
menn taki sig til og komi á einhverri reiðu í nafngif-
tum þeim sem lúta að verktöku og útboðsmálum.
HVAÐ ER EINKAFRANKVÆND?
Einkaframkvæmd er tiltölulega ný aðferð við fjár-
mögnun og framkvæmdir innan samgöngu-, orku-
eða veitugeirans þar sem eikaaðilar fjárfesta í
stórframkvæmdum. Skammstöfunin BOT skýrist
þannig:
Build - Einkafyrirtæki eða fyrirtækjasamsteypa
semur um það við stjórnvöld að fjárfesta í opin-
beru mannvirki, t.d. samgöngumannvirki eða
virkjun. Fyrirtækið sér síðan um að fjármagna
framkvæmdirnar á byggingartímanum.
Operate - Framkvæmdaaðilinn (einkafyrirtækið)
á og rekur mannvirkið tiltekinn tíma (t.d. 20 ár) og
hirðir af því arðinn með notendagjöldum.
Transfer - Að loknum rekstrartíma einkaaðilans
er mannvirkinu skilað til hins opinbera, ríkis eða
staðbundinna yfirvalda.
Þessi aðferð var að vísu ekki fundin upp á síð-
ustu árum. Má með sanni segja að bygging Súez
skurðarins fyrir um 130 árum hafi verið fyrsta
einkaframkvæmdin. Að vísu fór kostnaðurinn langt
fram úr áætlunum, en sem betur fer fyrir fjárfest-
ana varð notkunin einnig mun meiri og því varð
Súez-skurðurinn vel heppnað mannvirki. í því til-
felli var fjárfestum, þ.e. eigendum hlutabréfa í fé-
laginu um skurðinn, veitt einkaleyfi til 99 ára, en
slíkt myndi teljast fáheyrt nú á tímum. Það fór líka
svo með Súez - skurðinn að ríkisstjórn Egypta-
lands yfirtók hann árið 1956, 12 árum áður en
tíminn rann út, og varð það tilefni svokallaðs Súez-
stríðs milli Egypta annars vegar og Breta og
Frakka hins vegar.
Það eru ýmsir kostir við þessa aðferð til að fjár-
magna framkvæmdir, í t.d. samgöngumálum.
Fyrst og fremst græðir sú þjóð þar sem slík fram-
kvæmd verður því ekki þarf að borga fyrir fjár-
festinguna beint úr ríkissjóði og þar með taka fé frá
öðrum mikilvægum verkefnum ríkisins svo sem
heilbrigðisþjónustu og skólastarfi. Eingöngu not-
endur mannvirkjanna munu greiða fyrir not sín af
þeim. Framkvæmdir geta haft jákvæð áhrif á at-
vinnulíf umhverfis nýtt mannvirki, en það er óháð
11