AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 52
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON, FRAMKVSTJ.
ENGEYJARflUgVÖIIUr
Framtiðarbyggð á flugvallar-
svæðinu. Umræða um
framtíðarstaðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar hefur einskorðast nánast ein-
vörðungu við landfyllingarmöguleika á
Lönguskerjum úti á Skerjafirði. Hún
hefur því verið nokkuð einhæf og á henni hliðar
sem ég sé ekki að gangi upp. Það gengurt.d. ekki
að þéttleiki nýrrar byggðar á flugvallarsvæðinu
byggist á því hversu kostnaðarsamt það reynist
að gera nýjan flugvöll. Með öðrum orðum, því
dýrara sem það reynist að gera flugvöll, því meira
verður að fást fyrir landið í Vatnsmýrinni.
Útgangspunktur skipulags nýrrar byggðar verð-
ur að vera allt annar. Vatnsmýrin verður að skoð-
ast sem hluti af heild. Um skipulag hennar verður
að fara mjúkum höndum. Ég er ekki enn farinn að
sjá fyrir mér þá byggð sem þar mun rísa. Skipulag
svæðisins verður þó augljóslega að taka tillit til
mikilvægra útivistarsvæða sem liggja að Vatns-
mýrinni og íbúðarbyggðarinnar í Skerjafirði og
norðan Hringbrautar. Það verður að huga að því
að Landspítalinn mun þarfnast meira rýmis í
framtíðinni. Þá þarf byggðin í Vatnsmýrinni að
tengjast miðborginni og styrkja hana.
Þegar grunnskipulagsvinnu flugvallarsvæðisins
er lokið er hægt að meta hvort það er yfirleitt fýsi-
legur kostur að reisa nýjan flugvöll á öðrum stað
af kostnaðarástæðum. Það er hins vegar ekki
hægt að troða sér í flík sem ekki passar jafnvel
þótt hún sé ódýr. Vatnsmýrin á ekki að verða lítil
Tokyo í Reykjavík.
VW HÖFUN VERIÐ HEPPIN
En það eru fleiri ástæður en efnahagslegar sem
valda því að menn líta til flugvallarsvæðisins sem
byggingarlands í framtíðinni. Fyrst er að nefna
öryggisástæður. Um það er hægt að hafa mörg
orð. í síðustu viku var ég að hlusta á fyrrverandi
flugmálastjóra, Pétur Einarsson, í útvarpsviðtali.
Hann sagði á þá leið að það væri bara spurning
um tíma hvenær stórslys hlýst af því að hafa
flugvöll inni í miðri borg. Það er ekki hægt annað
en taka undir með Pétri. Við höfum verið heppin.
NENGUN OG ÓNÆÐI
Önnur ástæða er mengunin og ónæðið sem af
flugvellinum hlýst. Ég get best trúað að ónæðið
og þá fyrst og fremst flugvélagnýrinn sé í hugum
margra sem búa í mið- og vesturborginni aðal-
ástæðan fyrir því að flugvöllurinn eigi að fara eitt-
hvert annað. Það er helst æfingaflugið sem veld-
ur ónæði með síendurteknum æfingalendingum.
80% lendinga á Reykjavíkurflugvelli tengjast æf-
50