AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.1999, Page 63
Guðmunda Geirmundsdóttir er eini íslenski nemandinn
við deildina. Hún er 23 ára Keflvíkingur og stundar nám á
3. ári. Ég ræddi við hana í byrjun janúar til að heyra hen-
nar álit á náminu og fá hana til að segja frá þeim
verkefnum sem hún hefur fengist við hingað til.
Hvers vegna valdirðu þetta nám? „Ég hef alltaf haft
áhuga á því að búa til hluti og hugleiddi nám í innanhús-
sarkitektúr eða listum en hvarf frá því vegna óljósra
atvinnumöguleika og minna öryggis. Við athugun á náms-
möguleikum í Noregi rakst ég svo á Teknisk Design og
ákvað að sækja um þar. Blandan af raungreinum og
sköpunarvinnu var það sem höfðaði til mín.
Hvernig líkar þér svo? Ég er mjög sátt við námsvalið og
meira að segja kom ýmislegt skemmtilega á óvart.
Námsálagið er að vísu mjög mikið en það finnst mér
eðlilegt fyrir nám á háskólastigi.
Námsvinnan er mjög fjölbreytt með verklegum þáttum,
tölvunotkun, upplýsingaöflun, hugmyndavinnslu, lestri og
úrlausn verkefna.
Mikið er um að verkefni séu leyst í samvinnu nemenda
og samstarfsandinn í bekknum er mjög góður.
Nemendur læra því hver af öðrum og jákvæð samkepp-
ni skapar metnað um að skila verkefnunum sem best af
hendi.
Aðgangur að vel búnu verkstæði er mjög mikilvægur til
að fá skilning og þekkingu á efniseiginleikum og vinnslu-
aðferðum."
Hvað viltu segja um námið? „Hönnunarverkefnin eru
mikilvægasti þáttur námsins. Auk þeirra vil ég sérstaklega
VIÐTALVIÐ
Guðmundu Geirmundsdóttur
«t90tt jafnvægi**
nefna kennsluna í form- og litameðferð þar sem nemendur
fylgja svipuðu prógrammi og nemendur í arkitektúr. Þetta
er mikilvægur þáttur í grunnnáminu þar sem kennd er
teikning, form (þrívíddarhönnun), litameðferð og hug-
myndameðferð (konsept). Stærðfræðin og aðrar raun-
greinar nýtast að vísu ekki í stórum mæli í hönnnun-
arverkefnunum, enn þessar greinar gefa hagnýtan grunn
fyrir starf og frekara nám og eru auk þess skólun í rökræn-
ni hugsun. Það að skipta á milli teiknivinnu og lausnar á
stærðfræðiverkefnum gefur gott jafnvægi.
Og framtíðin? „Um helmingur nemenda tekur hluta af
náminu erlendis. Ég stefni að því að taka 4. árið við
Listaháskólann í Helsinki og taka lokaverkefnið vorið
2001. Hvað þá tekur við er ennþá óráðið."
vísindum (fílan), stærðfræðigreining 1-3, eðlis-
fræði, tölfræði, aflfræði og vélhlutafræði. Form og
litameðferð er svo kennd við Arkitektúrdeildina.
Um 50% námskeiða eru kennd við Vöruhönnun-
arstofnunina (Institutt for produkt-design). Mikil-
væg fög hér eru: vinnuvistfræði, samspil manns og
vélar, umhverfisvæn hönnun og verkefnastjórnun.
Á hverri önn er eitt námskeið þar sem nemendur
vinna að raunhæfum hönnunarverkefnum. Verk-
efnin eru burðarásinn í náminu og reynt er að
tengja önnur námskeið því sem verið er að fást við
i verkefnunum. Allt nám í efnisfræði og fram-
leiðslutækni er lagt inn í verkefnin. Verkefnum
lýkur með kynningu fyrir nefnd sérfræðinga og/eða
samstarfsfyrirtækja sem tengst hafa verkefnunum.
í hverju verkefni er lögð áhersla á ákveðna þætti
hönnunar og vöruþróunarferlisins.
RANNSÓKNIR
Eitt af markmiðunum með stofnun iðhönnunar-
deildar í Þrándheimi var að stuðla að traustari
faglegum grundvelli hönnunarstarfsins með aukn-
um rannsóknum og samvinnu við aðrar rann-
sóknarstofnanir.
Norska rannsóknarráðið (NFR) veitti í byrjun
1994 1,1 milljón Nkr. á ári í þrjú ár. Einnig voru
veittar 0.5 milljónir frá Scanaluminium. Þrjú rann-
sóknarverkefni voru skilgreind og einn styrkur til
doktorsnáms tengdur hverju þeirra.
Sameiginlegt markmið í öllum verkefnunum var
bætt aðferðafræði og hjálpartæki við hönnun.
Verkefnin voru:
I Aðferðafræði við hönnun með áherslu á efnis-
val og þekkingu á framleiðsluferlum.
I Umhverfisvæn hönnun og sjálfbær iðnaðar-
ferli.
I Samspil manns og vélar (Man-machine
Interaction).
Öll verkefnin hafa nýst vel í uppbyggingu náms-
ins og tveir af fyrstu styrkþegum útskrifuðust með
doktorsgráðu 1998, en sá þriðji mun Ijúka verk-
efninu vorið 1999. Byggð hefur verið upp aðstaða
til greiningar á notendaviðmóti vöru og hugbú-
naðar (brukbarhetslaboratorium), sem nýst hefur
Liósmvndari: Harald Sævarei