AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Blaðsíða 30
að val á aðferðum taki mið af því
að virkja sem flesta til þátttöku og
ná til ólíkra hóþa í samfélaginu.
Ef þátttaka almennings á að hafa
eitthvert gildi er mikilvægt að skapa
skilyrði til að þátttaka sé jöfn í sam-
félaginu og að samráðið geti skilað
ávinningi sem víðast innan sam-
félagsins. Eitt helsta markmið þátt-
tökuaðferða ætti í raun að vera að
yfirvinna þær hindranir sem standa í
vegi fyrir almennri og víðtækri þátt-
töku, í samræmi við áhuga fólks.
Lykilatriði er að samráð felur ekki
endilega í sér framsal valds yfir-
valda til íbúa heldur, eins og
áður kom fram, einhvers konar
samstarf íbúa og yfirvalda.
Samráð, hvað svo?
Með áherslu á eflingu samráðs við
íbúa vakna sþurningar um hvort
þátttaka íbúa hafi einhverja þýðingu.
Til að tryggja það er mikilvægt að
íþúar sem tekið hafa þátt (sam-
ráðsferli séu upplýstir um niður-
stöður af þátttöku þeirra. Mikilvægt
er að þátttakendur sjái að þátttaka
þeirra skipti máli og að ekki sé um
að ræða falskt þátttökulýðræði.
Eftirfylgni felur ekki endilega í sér
að framkvæma eigi ailar þær hug-
myndir sem hafa komið fram, heldur
að yfirvöld bregðist við niðurstöðum
samráðs og upplýsi hver muni verða
næstu skref. Við mótun samráðs
þurfa yfirvöld því einnig að móta
hvernig eftirfylgni verði háttað.
Eitt alvarlegasta feilsporið sem teng-
ist þátttöku almennings í ákvörðun-
um er varða umhverfi og skipulag er
hins vegar þegar yfirvöld lofa því að
þau skuldbindi sig til þess að fylgja
að einhverju leyti óskum og skoðun-
um íbúanna, en gera það svo ekki.
Slíkt grefur undan trúverðugleika
stjórnvalda og hindrar frekari þróun
íbúalýðræðis á hvaða sviði sem er.
Því er pólitískur vilji og heilindi alltaf
forsenda aukinnar þátttöku almenn-
ings og fagmennska í framkvæmd
samráðs forsenda árangursríkrar
notkunar þátttökuaðferða og grein-
ingar á niðurstöðum samráðs. ■
E=l RK 1
( MYNDHÖNNUN )
Skeifunni 8 • 557 2332 • www.merkingar.is
Prentun • Límstafir
Sandblástursfiima • Ljósaskilti • Hönnun
ÍSLENZKA VERZLUNARFÉLAGIÐ
1942 - 2002
Askalind 5 • 200 Kópavogur • Sími 564 5500 • Fax 564 5555 • isv@isv.is
Frá Danfoss færðu
allan stjórnbúnað
fyrir hitakerfi frá
virkjun til heimilis
Danfoss er leiðandi í framleiðslu
stjórnbúnaðar fyrir hitakerfi
Danfoss hf
Skútuvogi 6
104 Reykjavík
Sími 510 4100
www.danfoss.is