AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.12.2004, Blaðsíða 59
Nú er byrjað að framleiða þenn-
an stól á nýjan leik. Það gerir
danska húsgagnafyrirtækið
Hansen og Sörensen, sem leggur
áherslu á vandaða nútímahönn-
un og hefur m.a. framleitt hús-
gögn hönnuð af Finn Juhl, einum
hinna frægu kennara Sveins í
Kunsthaandværkerskolen. Stólinn
er nú til sýnis og sölu í Epal.
Annar íslenskur hönnuður, Erla
Sólveig Óskarsdóttir, hefur líka
hannað húsgögn, sem fram-
leidd eru hjá þessu fyrirtæki.
Húsgögn og húsbúnað sem
Sveinn Kjarval hannaði má víða
sjá. Hér að framan var frá því
greint, að fyrsta stóra verkefn-
ið sem honum var falið var að
hanna búnað í Þjóðminjasafnið.
Verk hans má einnig sjá í veit-
ingahúsinu Naustinu í Reykjavík,
Bókasafni Hafnarfjarðar, bóka-
safninu að Bessastöðum, Alþingi,
íþöku, bókasafni Menntaskólans
í Reykjavík, heimavistum menn-
taskólanna á Laugarvatni og
Akureyri og í Landspítalanum.
Sveinn vann líka að hönnun
ýmissa innréttinga, húsgagna
og muna í fjölda kirkna víða um
land. Þau verk getur að líta í kirkju
Óháða safnaðarins í Reykjavík,
Hvammstangakirkju, safnaðar-
heimili Langholtskirkju í Reykjavík,
Péturskirkju í Görðum á Álftanesi,
Reykhólakirkju og Hólmavíkurkirkju.
Hann vann líka að margvíslegum
verkum fyrir verslanir og önnur
fyrirtæki, auk fjölda verkefna fyrir
Skeifustóllinn. /
The hourseshoe chair.
einstaklinga, stórra og smárra.
Húsgögn hannaði Sveinn Kjarval
ýmist sem sjálfstæð viðfangs-
efni fyrir framleiðslu eða sem
hluta af afmörkuðu verkefni. ■