Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 Ný þjóðgarðsmiðstöð hefur verið opnuð á Hellissandi. Hákon Ásgeirsson, þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs, segir miðstöðina hafa mikla þýðingu, bæði fyrir þjóðgarðinn og samfélagið allt á Snæfellsnesi. „Þegar við vorum að vinna hugmyndavinnu með fulltrúum hér úr samfélaginu um hvernig sýningu ætti að setja upp í húsinu, þá snerist umræða að miklu leyti um það hvernig húsið nýtist samfélaginu. Eftir vinnuna með hugmyndavinnuhópnum héldum við fundi með fulltrúum í nærsamfélaginu, þ.e. frá fræðasamfélaginu, skólunum á svæðinu og fulltrúum frá Snæfellsbæ. Umræðan var um hvernig þjóðgarðsmiðstöðin nýtist í heimabyggð,“ segir Hákon. Samkeppni um hönnun sýningar Að sögn Hákons er verið að setja upp sýningu, hönnuð af Antoni Illugasyni, sem áætlað er að verði fullbúin fyrir sumarið 2024. Samkeppni verður um hönnun sýningarinnar, sem fer í útboð á næstunni. Í húsinu verður einnig veitingasala sem verður boðin út. Þá verður minjagripasala og fræðslurými til að taka á móti skólahópum á öllum stigum. Einnig verður rými fyrir tímabundnar sýningar um sögu, listir og vísindi. Hægt verður að halda ýmiss konar viðburði, eins og ráðstefnur og fundi, í nýja húsnæðinu. „Okkar von er að þetta verði ekki bara gestastofa fyrir gesti þjóðgarðsins, heldur einnig fræðahús og félagsmiðstöð. Að hér vilji fólk koma aftur og aftur, eiga stund saman, hvort sem það eru skólahópar í fræðslu eða bara til að hittast yfir kaffibolla hér í tilvonandi veitingaaðstöðu og spjalla um mikilvæg málefni eins og veðrið. Stefnt er á að þjóðgarðsmiðstöðin verði opin alla daga allt árið um kring. Einnig er í húsinu skrifstofa þjóðgarðsins og erum við alsæl með þá aðstöðu, það er góður andi í húsinu,“ segir Hákon. Fjölbreytilegur þjóðgarður Snæfellsjökulsþjóðgarður var stofnaður 28. júní árið 2001 í þeim tilgangi að vernda bæði sérstæða náttúru svæðisins og merkilegar sögulegar minjar. Þjóðgarðurinn er 183 ferkílómetrar að stærð, staðsettur vestast á Snæfellsnesi og er fyrsti þjóðgarður landsins sem nær að sjó. Eins og margir vita er strönd Snæfellsness fjölbreytileg þar sem skiptast á grýttir vogar, strendur með ljósum eða svörtum sandi og snarbrattir sjávarhamrar með iðandi fuglalífi yfir varptímann. Láglendið innan þjóðgarðsins er að mestu hraun sem víðast er þakið mosa en inn á milli má finna skjólsæla bolla með gróskumiklum gróðri. Snæfellsjökull, eitt formfegursta fjall landsins, trónir tígulega í þjóðgarðinum. Jökullinn er virk eldkeila sem hefur hlaðist upp í mörgum hraun- og sprengigosum á síðustu 800 þúsund árum. Síðast gaus í jöklinum fyrir um 1.800 árum og var það stórgos. „Eldstöðvakerfið, sem kennt er við Snæfellsjökul, sýnir menjar eftir einstæð eldsumbrot, bæði frá síðasta jökulskeiði og eftir að ísöld lauk. Þessar fjölbreyttu jarðmyndanir gera þjóðgarðinn einstakan. Suðurhlíðar jökulsins eru sérstæðar en Háahraun og Svartahraun eru gróf apalhraun, við Svalþúfu og Lóndranga má sjá þversnið gjóskugígs, Purkhólahraun er eitt hellaauðugasta hraun landsins og ströndin frá Malarrifi að Hólahólum er prýdd margs konar hraunmyndunum,“ segir Hákon um leið og hann vekur athygli á því að innan þjóðgarðsins er að finna merkar menningarminjar frá tímum árabátaútgerðar, til að mynda kjalför báta í sjávarklöppum, fiskbyrgi, fiskreiti og rústir. Rústir bændabýla, jafnvel allt frá söguöld, eru einnig greinilegar. Gamlar þjóðleiðir liggja um þjóðgarðinn og með sumum þeirra eru fallega hlaðnar vörður. Svæðið kemur einnig mjög við sögu í skáldskap og listum, innanlands og utan. 450 þúsund gestir Metfjöldi gesta heimsótti Snæfellsjökulsþjóðgarð árið 2019, alls 450.000 manns. Í fyrra voru gestirnir 350.000 talsins. „Við gerum ráð fyrir miklum fjölda gesta í sumar því fleiri skemmtiferðaskip hafa bókað komu sína í Grundarfjörð en áður, eða 65 skip með um 65.000 farþega. Við teljum okkur vera vel undirbúin að taka á móti þeim og ný þjóðgarðsmiðstöð hjálpar þar til. Með henni munu gestir vonandi dreifast meira um svæðið og álag á Malarrif minnkar yfir háannatímann, en þar fer fjöldinn stundum yfir það sem sú gestastofa getur borið. Þá bætast við tíu salerni í þjónustu okkar en það hefur verið áskorun allt til dagsins í dag að hafa nóg af salernum. Þá hefur mikið verið byggt upp af innviðum í þjóðgarðinum og því er svæðið vel í stakk búið að taka á móti gestum án þess að það hafi neikvæð áhrif á náttúruna. En áfram verður gert betur í þeim efnum,“ segir Hákon. Enginn dagur eins Það eru eflaust einhverjir sem velta því fyrir sér hvert hlutverk þjóðgarðsvarðar sé og hvað sé skemmtilegast við starfið. „Það eru þau forréttindi að standa vörð um íslenska náttúru. Enginn dagur er eins í starfi þjóðgarðsvarðar. Starfið er að stórum hluta samskipti við alls konar fólk, ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög, ferðaþjónustufyrirtæki, gesti þjóðgarðsins og síðast en ekki síst fólkið á Snæfellsnesi. Meginhlutverk þjóðgarða er að vernda náttúru en um leið að fræða fólk um náttúruna, sögu og mikilvægi náttúruverndar. Eitt það skemmilegasta í mínu starfi er fræðsluhlutverkið. Það er ekkert skemmtilegra en að fara með gesti þjóðgarðsins í göngu og tengja þá náttúrunni. Það er ekkert fallegra en það ef það tekst. Þegar ég fékk New York búann til að fara úr skónum í móanum, sleppa tökum á símanum, loka augunum og virkja öll skynfæri, tærnar í grasinu, ilmur af blómstrandi brönugrasi og ekkert hljóð nema vellið í spóanum. Þetta var ein stórkostlegasta upplifun sem New York búinn hafði upplifað,“ segir Hákon skælbrosandi. Magnús Hlynur Hreiðarsson magnushlynurh@gmail.com Starfsfólk þjóðgarðsins, frá vinstri: Mandy Nachbar þjónustufulltrúi, Guðmundur Jensson landvörður, Eva Dögg Einarsdóttir yfirlandvörður, Rut Ragnarsdóttir þjónustustjóri, Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sem opnaði formlega nýju þjóðgarðsmiðstöðina, Hákon Ásgeirsson þjóðgarðsvörður og Páll Marel Jónsson landvörður. Nýja byggingin er um 710 fm að stærð en þar verður þjónusta við gesti þjóðgarðsins, sýning, veitingaaðstaða, skrifstofur og fleira. Kostnaður við bygginguna var um 600 milljónir króna en hún var hönnuð af Arkís arkitektum, sem unnu hönnunarsamkeppni árið 2006. Myndir / Aðsendar Hákon Ásgeirsson, sem tók við starfi þjóðgarðs- varðar í júlí á síðasta ári. Áður starfaði hann í þjóðgarðinum sumrin 2006- 2009 og 2011 sem sumarlandvörður. Snæfellsnes: Ný þjóðgarðsmiðstöð opnuð á Hellissandi – Forréttindi að standa vörð um íslenska náttúru LÍF&STARF YLEININGAR Léttar stálklæddar samlokueiningar sem fást með þéttifrauðs- eða steinullarkjarna. Auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Henta vel fyrir eldri gripahús þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum. Hafðu samband: bondi@byko.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.