Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Miðvikudagur 27. apríl 2023
Claas Arion 450 MR CIS+
ER EINSTAKLEGA VEL HEPPNUÐ ALHLIÐA DRÁTTARVÉL. SÉRSTAKLEGA HÖNNUÐ FYRIR ALLA
ÁMOKSTURSTÆKJA VINNU. AFL LIPURÐ OG FRAMÚRSKARANDI UMHVERFI STJÓRNANDA
GEGNIR LYKILHLUTVERKI
• Meðal helsta búnaðar má nefna:
• Hreyfi ll 4 strokka með 4.5 L rúmtaki, 135 hestafl a, skilar 573 Nm togi
• QUADRISHIFT 16x16 gírar 40 km ökuhraði með sjálfskip�möguleika
• SMART STOP þá nægir að s�ga á bremsu �l að nema staðar
• Vökvavendigír. Auka vökvavendigír í servói í armhvílu hægra megin
• Álagsstýrð vökvadæla (load sensing) 110 ltr. Rafstýrt vökvakerfi
• Tvær miðjuse�ar vökvaspólur fyrir ámoksturstæki
• Power Beyond/load sensing vökvaú�ök
• Bakfl æðislögn/free fl ow return
• Vökvalyfukrókur með útskot
• Þriggja hraða afl ú�ak 540/540 eco/ 1000 rpm
• 2 punkta hús�öðrun
• ELECTROPILOT Rafstýrður ölvirkur stýripinni/servo í armhvílu
• Farþegasæ� með öryggisbel�
• Dekk að a�an 600/65 R38 Trelleborg TM 800
• Dekk að framan 480/65 R28 Trelleborg TM 800
• Claas FL 120 ámoksturstæki með EURO ramma fyrir tengitæki.
• Mach 2 hraðtengi fyrir 3 svið
• Vökva skófl ulás
• Fjöðrun á gálga. Tengd og a�engd með rofa inni í ökumannshúsi
• Og margt fl eira
- Verkin tala
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • velfang.is • Óseyri 8 • 603 Akureyri • velfang@velfang.is
Garðyrkjuskólinn:
Vilhjálmur og Elínborg
handhafar verðlauna
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir og
Vilhjálmur Lúðvíksson hlutu
garðyrkjuverðlaun á sérstakri
hátíðardagskrá Garðyrkjuskólans
á Reykjum í Ölfusi sem stóð fyrir
opnu húsi á sumardaginn fyrsta.
Ásmundur Einar Daðason,
mennta- og barnamálaráðherra
færði þeim Elínborgu Erlu og
Vilhjálmi verðlaunin.Elínborg
Erla hlaut hvatningaverðlaun en
hún er, garðyrkjuframleiðandi á
Breiðargerði í Skagafirði. Hún
útskrifaðist sem garðyrkjufræðingur
úr Garðyrkjuskólanum 2020. Í
Skagafirði stundar hún lífræna
útiræktun á grænmeti auk þess að vera
með ræktun í þremur gróðurhúsum.
Þar að auki er skógrækt á jörð
hennar á um 50 hektara svæði
samkvæmt samningi við Skógræktina
og gróðursettar um 10 þúsund plöntur
á ári. Heiðursverðlaun garðyrkjunnar
í ár fékk Vilhjálmur Lúðvíksson,
verkfræðingur. Vilhjálmur er
stúdent frá MR 1961 og hélt svo til
Bandaríkjanna þar sem hann lauk
doktorsprófi í efnaverkfræði.
Vilhjálmur gegndi stöðu fram-
kvæmdastjóra Rannsóknaráðs
ríkisins og síðar RANNÍS um langt
árabil. Auk þess gegndi hann fjölda
trúnaðarstarfa fyrir stjórnvöld sem
fulltrúi í nefndum og ráðum, bæði
innanlands og á alþjóðavettvangi.
Hann hefur einnig sinnt ritstörfum
meðfram öðrum störfum og
ritstýrði m.a. Riti Landverndar,
bakgrunnsskýrslum á úttektum
OECD á vísinda- og tæknistefnu
Íslendinga og Garðyrkjuriti
Garðyrkjufélags Íslands. /MHH
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, fékk
hvatningaverðlaun garðyrkjunnar
2023 en Ásmundur Einar sá um að
afhenda verðlaunin. Myndir /MHH
Vilhjálmur Lúðvíksson hlaut heiðursverðlaun garðyrkjunnar 2023. Hann
hefur verið virkur í félagsstarfi í skógrækt og garðyrkju um langt árabil og
stuðlað að ýmsum verkefnum sem hafa haft jákvæð áhrif til langs frama.