Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 63
63Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
skýrsla þar sem gripum eru raðað
upp eftir niðurstöðunni frá besta til
lélegasta. Ekki er einungis raðað
upp eftir ómmælingu og útlitsdómi,
heldur teknir með margir þættir s.s.
kynbótamat fyrir fæðingarþunga,
vaxtarhraði og margt fleira. Allar
upplýsingar um gripina koma fram
og eru í þessari skýrslu sem er svo
aðgengileg öllum í skýrsluhaldinu
og notuð varðandi sölu og kaup
lífdýra. Sé gripurinn ekki hæfur
til undaneldis kemur það skýrt
fram á blaðinu hans með rauðum
stöfum þannig að það fari ekki fram
hjá bóndanum þegar hann velur
ásetnings- eða sölugripi.
Búfjárdómar á íslenskum
Angusgripum
Í framhaldi ferðarinnar til Noregs
og þjálfunarinnar sem fór þar
fram mun RML bjóða bændum að
fá starfsmenn RML til að dæma
nautgripi af Angus kyni (minnst
50% Angus). Í fyrstu verður aðeins
hægt að fá útlitsdóm á gripum en
vonandi verður hægt að bæta við
ómmælingum í nánustu framtíð.
Gripir þurfa að vera á aldrinum 290-
450 dagar þegar þeir eru dæmdir en
gott er að miða við um eins árs aldur.
Mikilvægt er að hafa aðstöðu í lagi
þannig að umhverfi og aðgengi til
að dæma gripina sé öruggt. Dómarar
hjá RML eru Ditte Clausen og Linda
Margrét Gunnarsdóttir. Þau sem hafa
áhuga á að fá útlitsdóm á Angus-
gripi til að auðvelda val á ásetningi
eða sölugripum er bent á að hafa
samband við Ditte Clausen (ditte@
rml.is, s: 5165011).
Ditte Clausen og
Linda Margrét Gunnarsdóttir
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull
Heimasmíðuð aðstaða til meðhöndlunar gripa. Tökubásinn og rekstrarhringur
eru undir þaki en annars er aðstaðan opin.
VÖRU
SKEMMA
TIL SÖLU
klaustur.is
Skemman hefur aldrei verið reist og er seld í því ástandi sem hún er í. Um er að ræða um
540 fm vöruskemmu með gluggum og hurðum, kambstáli og steypustyrktarneti keyptri
hjá H. Haukssyni ehf. Skemman verður afhent að Iðjuvöllum 10, Kirkjubæjarklaustri.
Skaftárhreppur tekur sér rétt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Skemman verður seld með öllu því sem henni tilheyrir ásamt teikningum sem liggja fyrir.
Skaftárhreppur óskar eftir tilboðum í vöruskemmu
sem keypt var til notkunar sem sorpflokkunarstöð.
Nánari upplýsingar
Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri
í síma 842 5800.
Tilboð berist fyrir 1. maí nk.
Tilboðum skal skilað í lokuðu umslagi á skrifstofu
Skaftárhrepps, fyrir 1. maí 2023.
Tilboð skulu merkt: Vöruskemma, ásamt nafni
bjóðanda og fullu heimilisfangi.