Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023 FRÉTTIR Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Fagfundur sauðfjárræktarinnar: Erfðapróf í sjónmáli fyrir erfðagallann bógkreppu Á fagfundi sauðfjárræktarinnar 2023, sem haldinn var á Hvanneyri á dögunum, kynnti Sæmundur Sveinsson frá Matís verkefni sem felst í leit að erfðaþáttum bógkreppu – en í máli hans kom fram að erfðapróf væri í sjónmáli sem verður hægt að nýta til að finna arfbera. Sæmundur segir að niður­ stöðurnar, sem stefnt er að nýta til þróun erfðaprófs, sé í raun afrakstur samstarfs RML, Keldna og Matís ásamt rannsóknastofnuninni AG­Research í Nýja­Sjálandi. Þessir aðilar hafa stundað rannsóknir á bógkreppu á undanförnum tveimur árum, sem hafa verið dyggilega studdar af Þróunarsjóði í sauðfjárrækt. „Bógkreppa hefur um áratuga skeið verið alvarlegt vandamál í íslenskri sauðfjárrækt. Þetta er víkjandi erfðagalli sem veldur vansköpun í leggjum framfóta og allt bendir til að um eitt gen sé að ræða,“ segir hann. Mikil vansköpun „Vansköpunin er í flestum tilfellum það mikil að lömb komast ekki á spena og er yfirleitt lógað stuttu eftir burð,“ útskýrir Sæmundur. „Víkjandi erfðagallar eru sérstaklega erfiðir viðureignar í búfjárrækt, þar sem einstaklingar þurfa að hafa tvö eintök af hinu gallaða geni til að svipgerðin birtist. Þetta þýðir að arfberar eru ekki greinanlegir fyrr en þeir gefa af sér gölluð afkvæmi. Til að flækja málið enn frekar eru vísbendingar um að sami erfðagalli gefi aukinn vöðvavöxt í arfblendnu ástandi. Þetta þýðir að arfblendnir hrútar eru líklegri en ella til að verða valdir á sæðingarstöð. Nýjasta dæmið um þetta er sæðingahrúturinn Viðar 17­844, sem var afburðahrútur en að öllum líkindum arfblendinn um bógkreppugenið,“ segir Sæmundur. Hann segir að meginmarkmið verkefnisins sé að lýsa gallanum meinafræðilega og þróa erfðapróf til að hægt sé að finna arfblendna einstaklinga. „Niðurstöður eru lofandi og vonandi verður hægt að nýta erfðapróf á fyrri hluta næsta árs til að finna arfbera. En til að sannreyna virkni erfðaprófsins þarf að halda rann­ sóknum áfram og til þess þurfum við að fá erfðasýni af sem flestum bógkreppulömbum sem fæðast í vor ásamt foreldrum þeirra.“ /smh Um söfnun sýna vegna bógkreppu rannsókna Við söfnun sýna fyrir verkefnið verður lögð áhersla á að fá: • Sýni úr sem flestum bógkreppulömbum sem fæðast í vor og báðum foreldrum þeirra. • Sýni úr sonum Viðars 17-844. • Önnur áhugaverð sýni (s.s. Viðarsdætur eða hrútar sem liggja undir grun). • Þar sem aðeins verður hægt að greina takmarkaðan fjölda sýna verður beitt forgangsröðun við val sýna í greiningar og því ekki hægt að lofa því að öll sýni sem berast verði hægt að greina – a.m.k. ekki í fyrsta kasti. Þessar greiningar verða bændum að kostnaðarlausu þar sem þetta er hluti af rannsóknarverkefni. • Nota má sömu hylkin og verið er að dreifa vegna sýnatöku fyrir riðuarfgerðargreiningar. Ekki er hægt að nota stroksýni fyrir þessar greiningar. Merkja þarf sýnin vel (gripanúmer og bæjarnúmer) og láta fylgja þeim upplýsingar um gripinn sem sýnið er úr og hvernig hann tengist bógkreppu. Senda sýnin til Eyþórs Einarssonar, RML (Borgarsíða 8, Sauðárkróki) en Eyþór veitir nánari upplýsingar varðandi söfnun sýna fyrir verkefnið (ee@rml.is). /Eyþór Einarsson Bógkreppa er alvarlegt vandamál í íslenskri sauðfjárrækt, en hún veldur vansköpun í leggjum framfóta. Sæmundur Sveinsson greindi frá erfðaprófi til að finna arfbera bógkreppu. Nýtt þyrluflugfélag með höfuð- stöðvar á Ólafsfirði hefur hafið rekstur. „Við höfum notað tímann núna til að keyra okkur í gang og koma okkur í rétta gírinn fyrir sumarið, sem er ávallt háannatími í þyrlurekstrinum. Viðbrögðin hafa verið frábær og gaman að sjá hvernig bókanir hlaðast inn á dagatalið fyrir næstu mánuði,“ segir Jón Þór Þorleifsson, framkvæmdastjóri HeliAir Iceland, en fyrirtækið mun halda úti þyrlurekstri frá Ólafsfirði og í Reykjavík. Allir flugmenn félagsins eru íslenskir og leggur félagið mikla áherslu á að flugmenn þekki vel til íslenskra aðstæðna. „Þrír flugmenn eru í vinnu hjá okkur og auk þess eru nokkrar stöður sem fylgja því að halda úti flugrekstrarleyfi. Það eru nokkrir í eigendahóp HeliAir en aðaleigandinn er Árni Helgason ehf. á Ólafsfirði,“ segir Jón Þór. Honum fannst tímabært að byggja upp ferðaþjónustu á Ólafsfirði. „Skíðaflugið hefur verið mjög vinsælt hér á Tröllaskaganum síðustu árin. Eftirspurn eftir þyrluferðum á svæðinu hefur verið að aukast og því fannst okkur kjörið að stökkva inn og byggja upp félag hér á svæðinu sem gæti sinnt þessum markaði. Við höfum líka mikla trú á því að þetta eigi eftir að vinna vel saman, að vera með þyrlur í rekstri bæði á Ólafsfirði og Reykjavík,“ segir Árni Helgason. Boðið er upp á ýmis konar útsýnisflug. „Auk þess erum við líka að sinna ýmsu verkflugi, s.s. flutningi á efni og hífingar með þyrlu. Vélin sem við erum að fljúga núna er Bell 407 GXP, sem er ný vél og er sérstaklega hönnuð til útsýnisflugs með extra stórum gluggum. Þessi vél hentar líka vel til hífinga og hefur reynst okkur vel í þeim verkefnum,“ segir Árni. /mhh Ólafsfjörður: Mikil eftirspurn eftir þyrluflugi í sumar Eiganda þyrlufyrirtækisins fannst orðið tímabært að byggja upp ferðaþjónustu á Ólafsfirði. Myndir / Aðsendar Frakkland: Bannað varnarefni í innkölluðum tómötum Matvælastofnun Frakklands hefur innkallað stóra lotu af tómötum vegna þess að þeir innihalda sveppavarnarefnið klóróþalóníl sem getur verið hættuleg heilsu manna. Tómatarnir fóru í dreifingu 22. febrúar en hefur nú verið tekið úr sölu úr verslunum. Þeir neytendur sem keypt hafa vöruna geta skilað þeim í verslun og fengið endurgreitt. Matvælastofnun Frakklands segir í tilkynningu að í öllu falli ætti ekki að borða tómatana því neysla sveppaeitursins geti valdið margvíslegum heilsufarsvandamálum. Öllum þeim sem kunna að hafa neytt tómatanna er bent á að ráðfæra sig við lækni ef einhverjir kvillar gera vart við sig. Notkun varnarefnisins klóróþalóníls er bönnuð í matvælum og fóðri samkvæmt reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Bannið gildir einnig hér á landi samkvæmt ákvæðum EES­samningsins. Bann við notkun þess tók gildi í Evrópu árið 2020. Efnið er notað sem breiðvirkt varnarefni gegn sveppum, skordýrum og myglu í plöntum. Enn er notkun þess víðtæk í Bandaríkjunum, sér í lagi við ræktun á hnetum, kartöflum og tómötum. /ghp Tómatarnir innihéldu sveppaeitur. Mynd / Tom Hermans Bandarísk rannsókn: Þvagfærasýkingar úr kjúklinga- og svínakjöti Samkvæmt nýlegri bandarískri rannsókn má rekja 85 prósent allra þvagfærasýkinga í Bandaríkjunum til E.coli bakteríusýkinga og átta prósent þeirra eiga uppruna sinn í kjúklinga- og svínakjöti. Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir á sýklafræðideild Landspítalans og læknadeild háskóla Íslands, vekur athygli á þessari staðreynd á Facebook­síðu sinni. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í tímaritinu One Health. Lönd með gríðarlega mikið sýklalyfjaónæmi Í rannsókninni voru 1.188 E. coli sýni úr fólki skoðuð og 1.923 sýni úr kjötafurðum. Karl spyr síðan á Facebook­ síðu sinni: „Hvers vegna erum við þá að flytja inn frosna kjúklinga frá löndum með gríðarlega mikið sýklalyfjaónæmi í E. coli og fleiri bakteríum?“ /smh Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- fræðideild Landspítalans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.