Bændablaðið - 27.04.2023, Blaðsíða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 27. apríl 2023
Eignatorg kynnir: Lögbýlið Hóll í Firði og Hóll 2, Ísafjarðarbæ.
Um er að ræða jörð á einstaklega fallegum stað með góðum húsakosti. Heimarafstöð
sem getur framleitt upp undir 42 kwh. og möguleikar til mun meiri rafmagnsframleiðslu.
Á jörðinni eru m.a. eftirfarandi byggingar:
Íbúðarhús er byggt 1984, 278,5 fm og er á tveimur hæðum.
Aðgengilegt er að hafa tvær sjálfstæðar íbúðir í húsinu, hvor með sérinngangi.
Sumarhús byggt 2007, 59,9 fm.
Fjós byggt 2003, 678,3 fm. er stálgrindarhús með steyptri plötu,
klætt með yleiningum og getur hentað til margs konar starfsemi.
Fjósið er sambyggt flatgryfju og fjárhúsum og er innangengt á milli þessara húsa.
u.þ.b. 23 mínútna akstur til Ísafjarðar og 14 mínútna akstur á Flateyri.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson búfræðingur og löggiltur fasteignasali
í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Skýrsluhaldskerfi Bændasam-
takanna hafa verið í umsjón og
þróun RML frá áramótum 2019-
2020 þegar tölvudeild BÍ var
sameinuð RML.
Sú breyting að
forritun, þróun
og þjónusta við
kerfin séu rekin
sem ein heild
var mjög jákvætt
skref.
Skýrsluhalds-
kerfin Fjárvís,
Huppa, World-
fengur, Heiðrún
og Jörð eru gagna- lindir sem halda
utan um íslensku búfjárkynin og
landupplýsingar. Þau eru þannig
grundvöllur fyrir ræktunarstarfi
í búfjárrækt og kortlagningu
ræktunarlands, en eru jafnframt
bústjórnartæki fyrir bændur,
mikilvægur hluti greiðslukerfis í
landbúnaði og upplýsingaveitur fyrir
hið opinbera.
Þetta víðtæka hlutverk
skýrsluhaldskerfanna getur verið
áskorun þegar kemur að þróun
á forritunum og forgangsröðun
verkefna. Halda þarf í við hraða
þróun í tækni og hugbúnaði,
bæði því sem snýr að forritunum
sjálfum en ekki síður vegna þess
að landbúnaður er á hraðri leið í að
verða mjög tæknivædd atvinnugrein.
Á síðustu misserum höfum við
verið að bæta verklag og auka á
skilvirkni við forritun og þróun.
Einnig verið að aðlaga forritin að
nútíma forritunarmálum til þess
að geta aukið öryggi þeirra en
einnig til að auðvelda vinnu við
framtíðarþróun. Auðveldara er að
mæta kröfum notenda hverju sinni
ef hugbúnaðurinn er uppfærður
samkvæmt nýjustu þekkingu.
Forritin eru komin mislangt í þessu
ferli.
Það er markmið að bændur,
notendur kerfisins geti sagt til um
hvernig æskilegt sé að kerfin þróist
í framtíðinni. Við höfum því hafið
vinnu við stefnumörkun og var
Fjárvís fyrsta forritið sem tekið
var fyrir. Gerð var skoðanakönnun
meðal notenda Fjárvís varðandi
þróun á kerfinu. Helstu niðurstöður
úr þeirri vinnu voru birtar í síðasta
Bændablaði en glöggt mátti sjá að
notendur leggja áherslu á þróun
sem lýtur að aukinni snjallvæðingu
kerfisins og tengingu við jaðartæki
svo sem örmerkjalesara. Það er því
hafin vinna við að bregðast við þeim
óskum. Stefnt er að því að senda
út sambærilegar notendakannanir
vegna Huppu og Jörð.is á næstu
mánuðum og verða kynningar á þeim
niðurstöðum gerðar ljósar á síðum
Bændablaðsins.
Verðskrá forritanna hefur ekki
fylgt þeim kostnaði sem þarf til
þess að viðhalda kerfunum. Sem
dæmi hafa notendagjöld vegna
Huppu verið um 12 milljónir á
ári. Kostnaðurinn hefur hins vegar
verið mun hærri og því innkoman
engan veginn staðið undir eðlilegu
viðhaldi kerfisins. Kúabændum
hefur fækkað og því færri sem eru
að borga notendagjöld inn í kerfið.
Kerfið er því ekki sjálfbært og
ekki útlit fyrir að það breytist nema
kúabændum fari að fjölga verulega
eða notendagjöld hækkuð.
Þetta á við öll kerfin en þó
eru þau misvel fjármögnuð vegna
mismunandi fjölda notenda. Hingað
til hafa notendagjöldin á ári við
forritin verið um 20 þús kr. (aðeins
mismunandi á milli forrita) eða
innan við 2 þúsund kr. á mánuði.
Notendagjöld á Fjárvís, Jörð og
Heiðrúnu hafa verið þrepaskipt
fram að þessu og þá miðað við
búfjárfjölda eða fjölda hektara
þannig að ódýrustu notendagjöldin
með aðild að Bí voru innan við
5 þúsund krónur á ári. Nú hefur
verðskránni verið breytt þannig að
öll þrepin falla út og sama verð er til
allra með þeim rökum að kostnaður
við kerfin eru alveg þau sömu óháð
búfjáreign eða fjölda hektara.
Aðild að Bændasamtökunum
veita 30% afslátt af notendagjöldum
eins og verið hefur. Sjá verðskrá inn
á www.rml.is.
Í allra nánustu framtíð verður
gerður mun meiri munur á því sem
kallað er lögbundið skýrsluhald þar
sem notandi hefur lágmarksaðgang
að kerfunum en getur uppfyllt
þær kröfur sem stjórnvöld krefjast
varðandi hjarðbækur og skil vegna
greiðslukerfis.
Í gegnum slíkan aðgang verða ekki
þeir möguleikar sem bjóðast þeim
sem hafa fullan aðgang. Svo sem
hverslags bústjórnunarmöguleikar,
tenging jaðartækja, skýrslubirtingar
o.s.frv. enda greiða notendur með
fullan aðgang fyrir þróun á þeim
hluta kerfisins.
Skýrsluhaldskerfin eru verðmæti
sem mikilvægt er að hlúa að þannig
að þau séu jöfnum höndum gott
vinnutæki fyrir bændur og fyrir þá
aðila sem nýta gögn úr þeim til dæmis
við framkvæmd ræktunarstarfs,
vegna umhverfis og loftslagsmála
og síðast en ekki síst til þess að
halda utan um búfjáreign og þróun á
afurðum íslenska búfjársins.
Karvel L Karvelsson,
framkvæmdastjóri RML
Uppbygging skýrslu-
haldskerfanna
Karvel L.
Karvelsson.