Harmonikublaðið - 15.05.2020, Síða 2
Ávarp formanns
Kæru félagar og vinir
Þetta er búinn að vera skrítinn tími þessir
síðastliðnu tveir mánuðir. Engir dansleikir,
síðasti dansleikur sem ég fór á var síðast í
febrúar og var þorrablót hjá unnendum í
Reykjavík. Harmonikuleikarar hafa æft hver í
sínu horni, lítil starfsemi hjá félögunum enda
erum við ábyrg og „hlýðum Víði“ og tökum
ekki áhættu með okkar fólk.
S.Í.H.U. í samráði við F.H.U.R. tók ákvörðun
um að fresta landsmótinu sem átti að halda 2.
- 5. júlí í Stykkishólmi um eitt ár. Ekki man
ég eftir að fresta hafi þurft landsmóti áður og
man ég þó alveg aftur um nokkuð mörg ár. En
við ætlum að halda landsmót S.I.H.U. í
Stykkishólmi dagana 1.-4. júlí 2021 og
hvetjum menn til að taka þessa daga frá strax
og stefna að því að mæta í Hólminn á næsta
ári. Landsmótin eru frábær skemmtun, ég
hlakka til að hitta ykkur þar sem flest og njóta
tónlistarveislunnar í góðum félagsskap. Það vill
svo skemmtilega til að þar með er landsmótið
haldið á 40. starfsafmælisári S.Í.H.U., en
sambandið var stofnað 1981.
Þegar þessar hugleiðingar eru skrifaðar veit ég
ekki með vissu hvort útilegur eða einhverjar
harmonikuhátíðir verða í sumar, svo segja má
að þetta sé sumar óvissunnar með útilegur. Við
sem ætluðum að leggja land undir fót og heldur
betur að koma saman í sumar og skemmta
okkur og öðrum verður eitthvað minna úr verki
en ætlað var. En það kemur dagur eftir þennan
dag. Ég vona að sem flestir njóti sín í allri
þessari óvissu sem þessi Corona vírus veldur.
Ef vel gengur að kveða skratta niður er aldrei
að vita nema einhverjar samkomur
harmonikuunnenda verði síðsumars. Ef ekki
þá horfum við bara bjartsýn fram á veginn og
hlökkum til næstu samverustunda.
Harmonikukveðjur, Filippía J. Sigurjónsdóttir
AfVestfirðingum
fíenni, Sigga Hjartar þenur nikkuna í Bolungarvík
Pétur Ernir Svavarsson meí nikkuna í 2020 útgáfunni afAldreifór ég suíur
Upphaf þessa árs hefur verið einkennilegt,
þó ekki sé meira sagt, það veit alþjóð.
Aðalfundi frestað, Harmonikudagurinn
í dvala og þess vegna ekki hittingur á
Þingeyri. Landsmóti frestað ásamt
mótum sem vera áttu fyrri part sumars,
en eitt frestast ekki. Villi Valli verður 90
ára 26. maí n.k. Harmonikufélag
Vestfjarða og Félag eldri borgara hér í bæ
höfðu rætt það að koma á sameiginlegri
samkomu, Þorra- Góu- eða vorgleði með
dansi og einhverjum snæðingi, en það
varð ekki af því. Baldur Geirmundsson
valdi með sér spilara í félaginu, konur og
karla, til að æfa prógram fyrir Landsmótið
2020. Æfingar hófust í október og var
fram haldið eftir áramót, þrátt fyrir misjöfn veður og slæma færð. En
þegar samkomubannið var sett á skipti Baldur um gír og sendi sínu
fólki námsefnið á rafrænu formi, þannig að hver og einn gat æft sig
heima.
Tónlistarhatíðin ALDREI FÓR ÉG SUÐUR sem haldin hefur verið
hér um páska mörg undanfarin ár, sá við samkomubanninu og flutti
sig í sjónvarpið, var send út á Ruv. Að vanda var þar glæsilegt val
tónlistaratriða, en ég ætla að vekja athygli á tveimur lögum þar sem
2
LLARMONIKAN kom við sögu. Er þar
fýrst að nefna Örn Elías Guðmundsson
(Mugison) og konu hans Rúnu
Esradóttur flytja Gúanóstelpuna, sem
Örn Elías spilaði á harmoniku og Rúna
söng. Seinna atriðið er að hinn fjölhæfi
listamaður Pétur Ernir Svavarsson spilaði
með Between Mountains, áharmoniku.
En ekki nóg með það, þau eru öll
Vestfirðingar. Einn er sá Bolvíkingur sem
vert er að minnast. Hann heitir Benedikt
Sigurðsson fjölhæfur tónlistarmaður sem
hefur verið að spila fyrir og létta lund
íbúa á Hjúkrunarheimilinu Bergi í
Bolungarvík, nú þegar heimsóknarbann
hefur varað. Hann hefur staðið utandyra
og þanið sína nikku. Fyrir þá sem eru forvitnir um ættfræði, má geta
þess að hinn kunni harmoniku kall Hilmar Hjartarson er föðurbróðir
Benedikts. Eitt er það verkefnið sem vinna þarf að, það er að koma
Harmonikusafni Ásgeirs S. Sigurðssonar fyrir almenningssjónir, en
það er núna hýst hjá Byggðasafni Vestfjarða, leggjumst á árarnar með
það.
Svo var það sómi Súðavíkur, þau hjónaleysin og sómaparið Öddi
(Mugison) ogRúna Esradóttir (Mugilady). Þau tóku lagið Gúanóstelpan
sem er einkennislagAldrei fór ég suður
Hafsteinn Vilhjdlmsson, formaður HV