Harmonikublaðið - 15.05.2020, Síða 6
Vetrarstarfio hjá FHUR
Grétar, Doddi ogKrutján Ólafison ájanúarballinu. FróSi ágítarsér um aShljómarnir ViS byrjum á valsi. ÞorraballiShafiS
séu réttir
Fyrsta ball ársins fór fram 11. janúar. Vonast
hafði verið eftir góðri aðsókn eftir jólin, en
eitthvað stóð það í mönnum og hún varð álíka
og á nóvemberballinu. Að þessu sinni var ma.
leitað austur fyrir fjall að spilurum. Þeir hófu
leik félagarnir Guðmundur Samúelsson og
Grétar Geirsson. Þeir ollu ekki vonbrigðum
frekar en áður, þegar þeir hafa leikið fyrir
dansleikjum hjá félaginu. Grétar var ekki
kominn austan úr Holtum til að leika aðeins
smá stund og eftir að Guðmundur yfirgaf
sviðið, settust þeir hjá honum Þórður
Þorsteinsson (Doddi rafvirki) og Kristján
Olafsson vopnaður saxófóni. Ágætis þátttaka
var í dansinum og ekki minnkaði hún þegar
Sigurður Alfonsson tók við um hálf ellefu og
lauk ballinu um miðnættið. Þeir Hreinn
Vilhjálmsson, Fróði Oddsson og Eggert
Kristinsson sáu um bassa, gítar og trommur.
Þorrablótið var næst á dagskrá og nú tók
mannskapurinn við sér. Það voru tæplega 140
manns frá harmonikuunnendum og
Þjóðdansafélaginu, sem settust að veislu-
borðum þann 1. febrúar. Meðal gesta var
formaður SIHIJ Filippía Sigurjónsdóttir ásamt
eiginmanninum Pétri Sigurðssyni. Ymislegt
bar á góma samkvæmt venju. Elísabet
formaður setti hátíðina en afhenti síðan
Friðjóni stjórnina. Heiðursfélaginn Reynir
Jónasson lék undir fjöldasöng, þar sem eins
og alltaf var tekið vel undir. Emil Hjartarson
var aðalræðumaður kvöldsins og lýsti hann
Vestfirðingum í meitluðu máli. Kom þar
ýmsilegt merkilegt fram, sem ekki hafði áður
legið í augum uppi. Hefðbundið happdrætti
fór fram að venju. Undanfarin ár hefur farið
fram vísubotnakeppni á þorrablóti félaganna.
Eins og í fyrra samdi Ragnar Ingi Aðalsteinsson
nokkra fyrriparta sem dreift var á borðin. Mjög
vegleg verðlaun voru í boði, nefnilega
nýútkomin ljóðabókin „Bestu limrurnar“, í
samantekt Ragnars Inga. Án efa skemmtilegasta
bókin á síðasta ári. Það var Almenna
bókafélagið sem gaf verðlaunin. Það var góð
þátttaka í botnakeppninni. En því miður voru
flestir með meira af vilja en mætti. Þrír botnar
börðust um verðlaunin en dómnefndina
skipuðu þeir Emil R. Hjartarson og Pétur
Bjarnason. Það var erfitt að gera upp á milli
þeirra en vegna glettni varð botninn eftir Birgi
Hartmanns fyrir valinu.
Þorramat viðpráum öll,
það er engin lygi.
Þessi vísa þœtti snjöll,
áþriðja drykkjustigi.
Tveir botnar eftir Astu Sverrisdóttur úr
Skaftártungunum þóttu einnig góðir og má
segja að Ásta hafi tapað á sjónarmun.
Ylja vín og veisluföng,
vetur styttist óðum.
Gerast kvöldin ljós og löng,
ljúf með vinum góðum.
Hækkar sól og hýrnar geð,
hópast fólk á blódn.
Gleðst þar sínum maka með,
mörg ein broshýr snótin.
Dansinn hófst svo um hálf tíu og það var ný
hjómsveit sem steig á svið að þessu sinni.
Kristján Olafsson, Úlfhildur Grímsdóttir og
Asgerður Jónsdóttir. Þessi frumraun gekk
vonum framar og verður áhugavert að fylgjast
með þeim í framtíðinni. Hilmar Hjartar og
Linda Guðmunds tóku nú við og léku og
6