Harmonikublaðið - 15.05.2020, Side 8
Fréttir úr Skagafirði
Unga fólkið hefur œtíð áttsína fulltrúa á Jónmessuhátíð Skagfirðinganna
Þetta unga fólk sá ástaðu til að mæta íArgarð ogskemmti sér vel að eigin sögn
Starfið hefur verið frekar umsvifalítið
undanfarin ár en þó hefur verið haldin árlega
harmonikuhátíð á Steinsstöðum um
Jónsmessuhelgina og var það einnig svo
síðastliðið sumar. Hátíðin var haldin helgina
21.-23. júní. A föstudagskvöldinu spilaði
Geirmundur fyrir dansi. A laugardeginum var
haldin skemmtun þar sem ungir spilarar stigu
á stokk, bæði með harmonikur og önnur
hljóðfæri. Á ballinu á laugardagskvöldinu
spiluðu Miðhúsabræður, Aðalsteinn Isíjörð,
Geirmundur Valtýsson.
Auglýst voru æfingakvöld á vegum félagsins
og allir hljóðfæraleikarar boðnir velkomnir.
Æft var á föstudagskvöldum. Fyrsta æfingin
var 17. janúar. Nokkrir ungir
harmonikuleikarar hafa mætt á æfingar ásamt
eldri og reynslumeiri spilurum. Hljómsveidn
spilaði á Góugleði í Búminjasafninu í
Lindarbæ í byrjun mars við ágætar undirtektir..
A aðalfundi félagsins voru GunnarÁgústsson,
fráfarandi formaður og Aðalsteinn Isfjörð
harmonikuleikari, heiðraðir fyrir óeigingjarnt
starf í þágu félagsins. A fundinum var kosin
ný stjórn þar sem allir stjórnarmenn vildu
hætta. Nýja stjórn skipa Steinunn
Arnljótsdóttir formaður, Helga Hjálmarsdóttir
gjaldkeri og Sigurður Baldursson ritari.
Stefnt var að því að halda harmonikuhátíð á
Steinsstöðum um Jónsmessuhelgina 2020 eins
og hefð er fyrir en nú er ljóst að af því getur
ekki orðið. Skoðað verður hvort eitthvað
verður hægt að gera síðar á árinu en að
sjálfsögðu er stefnt að því að halda
fjölskylduhátíð harmonikuunnenda um
Jónsmessuhelgina árið 2021. Vonandi verður
lífið komið í eðlilegar skorður þá svo hægt
verði að spila og dansa og skemmta sér saman.
Steinunn Arnljótsdóttir Ljósmyndir: Siggi Harðar
Frosti Gunnarsson
sjötugur
Hér má sjá heiðurshjónin og Súðvíkingana, Björgu Hansdóttur og Frosta
Gunnarsson, en í sameiningu hafa þau séð um Frostpinna að vestan í
Harmonikublaðinu. Þau héldu upp á 70 ára afmælin sín í maí. Þar var
hvorki samkomu- né áfengisbann. Þau hafa frá upphafi verið dyggir
stuðningsmenn blaðsins. Blaðið sendir þeim heilla-og langlífisóskir í tilefni
afmælisins. Sömu óskir fá þau frá Harmonikufélagi Vestfjarða, með þökkum
fyrir störf fyrir félagið.