Harmonikublaðið - 15.05.2020, Síða 10
Harmonikusveit Suðurlands
- árið er 2019
Stefán, Grétar, Hjördís, Doddi og Birgir í Skyrgerðinni á Selfossi
Draumur í dós, stilltsaman í sumarblíðu í MiSsetbergi
Starfsemin hófst á nokkuð hefðbundinn hátt
eða með spilamennsku á þorrablótum á Hellu
og Selfossi en þar sá hljómsveitin „Rófu-
stappan“ um tónlistarflutninginn. Eftir þorra-
törnina hófust reglulegar æfingar og að venju
æft til skipds á áðurnefndum stöðum. Þann
10. mars var spilað á dvalarheimilum aldraðra,
Lundi á Hellu og Kirkjuhvoli Hvolsvelli við
góðar undirtektir heimilisfólks og er alltaf
sérstaklega ánægjulegt að heimsækja þessa staði
báða. Þegar kom að degi harmonikunnar þann
4. maí var troðið upp í Skyrgerðinni í
Hveragerði ásamt góðum gestum þeim Birgi
Hartmanns, Stefáni Armanni, Hildi Petru og
Sveitaballadrottningu Suðurlands Hjördísi
Geirs. Daginn eftir höfðum við framhald á
degi harmonikunnar en þá var spilað í Hvoli
Hvolsvelli á handverkssýningu eldri borgara
og var það vel til fundið og einnig var komið
við á Kirkjuhvoli og Lundi. Nokkuð annasöm
helgi en mjög vel heppnuð og skemmdleg.
Þann 31. maí var blásið til skemmtunar í Hvoli
á Hvolsvelli. Að þessu sinni voru gestir okkar
hljómsveitirnar Vinir Jenna og Sir Sigfús og
svo að sjálfsögðu Hjördís Geirs en hún er í
sérstöku uppáhaldi hjá okkur enda bæði hress
og skemmtileg eins og allir vita. Kaffi og
nýbakaðar kleinur voru í boði og öllu gerð
góð skil enda vel heppnað kvöld og allir fórum
kátir heim. A Kirkjuhvoli á Hvolsvelli er árlega
haldinn svokallaður aðstandendadagur og bar
hann að þessu sinni upp á 2. júní og vorum
við beðin um að spila fýrir heimilismenn og
gesti þeirra og gerðum við það með glöðu geði.
Hin margfræga útihátíð okkar á Borg í
Grímsnesi var svo haldin 7.-9. júní í
blíðskaparveðri og bullandi gleði harmo-
nikufólks sem reyndar allir þekkja.
Hin árlega harmonikumessa í Arbæjarkirkju
var haldin 16. júní að þessu sinni og var
þokkaleg mæting og kirkjukaffi að gömlum
og góðum sið á eftir. Nú var sumum farið að
lengja eftir sumarfríi og allt var með kyrrum
10
kjörum til 20. júlí en þá var ákveðið að spilarar
myndu hittast á Þjórsárbökkum, nánar tiltekið
á Miðsetbergi í Holta og Landsveit en þar á
einn félagi sumarbústað og dvöldum við þar
náttlangt og var spilað bæði á túninu heima
og í tjaldi við varðeld í kvöldrökkrinu enda
veður frábærlega gott og staðurinn ekki síðri.
Hyggja menn á aðra slíka samkomu síðar.
Troðið var upp á Töðugjöldunum á Hellu og
spilað við morgunverðarhlaðborðið þar.
Hauststarfið hófst svo með spilamennsku á
Kirkjuhvoli þann fyrsta september og þann
tuttugasta spiluðu þeir Doddi og Grétar með
Hjördísi Geirs í Salnum í Kópavogi.
Haustfundur S.I.H.U. var að þessu sinni
haldinn á Egilsstöðum 27.- 29. sept og þangað
brunuðu fulltrúar Rangæinga þau Haraldur
og Auður Friðgerður.
Eftir haustfund hófust svo reglubundnar
æfingar aftur og nú var stefnan sett á dagskrá
fyrir væntanlegt landsmót S.I.H.U. í
Stykkishólmi en það fór nú á annan veg eins
og öllum er kunnugt. Þann 17. nóvember
stóð harmonikusveitin að harmonikumessa í
Krosskirkju í Austur-Landeyjum og tókst vel
til en „fleiri komust þó að en vildu“ eins og
formaður sóknarnefndar orðaði það svo
skemmtilega og 28. nóv tókum við þátt í
svokölluðum húsaleigutónleikum í Menn-
ingarsal Oddasóknar
á Hellu þar sem við
höfum æfingaaðstöðu
ásamt mörgum
fleirum en á þessum
tónleikum troða allir
þessir hópar upp og
afraksturinn er not-
aður til endurbóta á
húsnæðinu sem er
vel. Einnig var spilað
fyrir eldri borgara á
Ljósheimum og Foss-
heimum á Selfossi í
þó nokkur skipti og Doddi og Birgir fylgdu
að venju jólasveinunum til byggða enda falla
báðir vel í hópinn að sögn Dodda. Einnig er
hefð fyrir því að fara á Lund á Hellu á
aðventunni með Lionsmönnum sem halda
utan um þessa stund þar.
Ekki má svo gleyma 1. desember en þá var að
frumkvæði staðarhaldara á Hótel Selfossi slegið
upp stuttu og snörpu harmonikuballi og var
það vel heppnað og mikið stuð á staðnum
enda gestir okkar títtnefnd Hjördís Geirs og
snillingurinn Hildur Petra. Var það mál manna
að þetta yrði endurtekið síðar. Það var afráðið
af formönnum Harmonikufélags Rangæinga
og Harmonikufélags Selfoss að skila
sameiginlegri starfsskýrslu til birtingar í
harmonikublaðinu undir nafninu „Harmo-
nikusveit Suðurlands“ enda myndu skýrslur
þessara tveggja félaga keimlíkar mjög verða.
Þetta nafn mun verða notað hér eftir á hljóm-
sveitina okkar og teljum við það vel við hæfi.
Við getum ekki annað en verið ánægð með
samvinnu þessara tveggja félaga og standa þau
bæði sterkari fyrir vikið.
F.h. Harmonikufélags Rangœinga og
Harmonikufélags Selfoss
Haraldur Konráðsson og Þórður Þorsteinsson
Sunnlendingar (Rangfyssingar) á Borg í Grímsnesi