Harmonikublaðið - 15.05.2020, Side 14
Tyrir vorferð FHUR að Laugum í Sælingsdal
vorið 1998 fékk Elísabet Harðardóttir okkur
konurnar til að æfa sérstakt prógram. Þar voru
Elsa Kristjáns, Elsa Haralds, ég og Elísabet
Harðardóttir og einhverjar fleiri. Þetta gekk
vel og Grettir Björnsson var mjög ánægður
með þetta framtak.
Haustið 2013 stakk Elsa Kristjáns upp á því
að við í hljómsveit FHUR æfðum upp sérstaka
kvennasveit. Þetta voru Elsa Kristjánsdóttir,
Elísabet Einarsdóttir, Halldóra Bjarnadóttir,
Guðrún Erla Aðalsteinsdóttir og Asgerður
Jónsdóttir og við æfðum nokkur lög okkur til
ánægju. Við völdum helst tvíradda lög sem ég
skannaði og sendi á hópinn. Svo bættist Fróði
Oddsson gítarleikari í hópinn og úr urðu
skemmtilegar æfingar með matseld,
tarotspilum, leikfimi og fleiru. Þá kallaðist
sveitin Fimm og Fróði. Við spiluðum á
hjúkrunarheimilum eins og Eir, á Grund,
Skjóli, í Mörkinni og víðar. Fróði hætti að
Þetta er sett hér með til þess að skrá niður
þennan kafla í sögu kvennasveita FHUR, en
þær hafa veitt okkur sem þátt tóku í starfi
þeirra mikla ánægju.
Nú er lag
Blaðið Harmonikan, sem þeir Hilmar
Hjartarson og Þorsteinn Þorsteinsson gáfu út
hélt um árabil harmonikumót um
verslunarmannahelgina, í Galtalæk og
Þrastaskógi. Þessi mót voru skemmtileg og ég
samdi lag og texta sem heitir Galtalækjargaman
sem þakklætisvott til Steina og Hilmars.
Viðlagið var „Snjallir eru strákarnir, Steini og
Hilmar Hjartar, alltaf eru tilbúnir, mótinu að
starta.“
FHUR fór að halda harmonikumót um þessa
helgi nokkrum árum seinna og hefur það verið
fjölsótt frá upphafi. Arið 2003 var það fyrst
haldið undir merkjum FHUR í Iðufelli í
Laugarási, í framhaldi af harmonikumótum
sveitir, bæði innlendar og erlendar. Auðna
mun ráða hvernig verður næstu
verslunarmannahelgi en ég vona það besta.
SIHU og Leikskólaverkefinið
I framhaldi af formennsku í FHUR varð ég
varaformaður SIHU, að mig minnir 2012 og
var þar til 2014, en Gunnar Kvaran var
formaður landssambandsins. Þar fékk ég
mikið og skemmtilegt verkefni með Guðrúnu
Guðjónsdóttur frá Harmonikufélagi Reykja-
víkur sem stóð yfir í tvö og hálft ár. Við
nefndum það „Harmonikan í leikskólum
landsins“. Við sömdum bréf og sendum á alla
leikskólana með ósk um að þeir hefðu
samband við okkur ef þeir vildu fá
harmonikuleikara í heimsólui. Þetta gekk allt
eftir og bréfið var áframsent á harmonikufélögin
á landsbyggðinni þar sem það átti við og svo
voru fengnir utanfélagsmenn á Hólmavík,
Vestmannaeyjum og á Höfn í Hornafirði til
Foreldrar og börn orðin stúdentar
Elísabet og Gyða leika í afmalisveislu
spila með okkur vorið 2014. Árið 2016 bættist
Gyða Guðmundsdóttir í hópinn og sama ár
kom Pétur Bjarnason og lék með okkur á
bassann (og eldaði líka frábærar súpur!). Þá
spiluðum við á þorrablótum í Fáksheimilinu
til viðbótar við Hjúkrunarheimilið Eir sem
við heimsóttum oft og fleiri staði. Þá kölluðum
við okkur Pæjurnar og Pétur. Einnig spilaði
hluti hópsins á sumarhátíðinni að Laugarbakka
og á skemmtifundum í Iðnó. Eftir fráfall Elsu
Kristjánsdóttur 2017 fengum við Ulfhildi
Grímsdóttur í hópinn. Lengst af vorum við
kallaðar Kvennasveit FHUR. Veturinn 2018-
19 varð minna um æfingar kvennasveitarinnar
og Halldóra hætti í hljómsveitinni. Við
Ásgerður og Ulfhildur spiluðum samt á
Laugarbakkahácíðinni um sumarið.
Síðastliðinn vetur ætluðum við að reyna að
hittast eitthvað og spila og spjalla, en lítið varð
úr því. Það þurfti að sinna æfingum á
landsmótslögunum og dansmúsikinni hjá
FHUR og svo setti veiran stórt strik í
reikninginn. Við Gyða höfum í nokkur ár
spilað mikið saman og köllum okkur
Harmonikufrænkur.
sem þar höfðu verið, en mótið var flutt að
Árnesi árið 2004. I Árnesi var gott að vera,
skjólsælt tjaldsvæði, góð sundlaug og ágætt
félagsheimili. Við Reynir mættum fyrst á
mótin í Árnesi og höfum mætt alltaf síðan.
Eftir að Árnesi var lokað var farið að
Varmalandi í Borgarfirði, sem var um margt
ákjósanlegur staður, rúmgott tjaldsvæði,
sundlaug og ágætt samkomuhús og þar hafði
m.a. landsmótið farið fram 1984. Þar gat þó
stundum hvesst hressilega. Ekki var ánægja
með framkomu tjaldstæðishaldara við
harmonikuunnendur og færðum við okkur
þá að Borg í Grímsnesi. Þar var mótið haldið
í fyrsta sinn um verslunarmannahelgina 2017
og þar finnst mörgum okkar að við séum
„komin heim.“ Staðurinn er miðsvæðis,
tjaldstæði gott og þokkalega skjólsælt. Þá
spillir það ekki að umsjónarmaður
tjaldstæðisins og húsvörður félagsheimilisins
hafa sýnt einstaka lipurð og samstarfsvilja.
Mótið hefur verið haldið þar síðan, er orðið
vinsælt og mótin hafa skilað hagnaði. FHUR
hefur ávallt lagt mikinn metnað í þessi mót
og fengið þangað einleikara og harmoniku-
að sinna harmonikuheimsóknum í leikskólana
þar. Pétur Bjarna náði í nikkara á Tálknafirði
og Patreksfirði. Þetta átak stóð í tvö ár og sums
staðar lengur. Mikill fjöldi leikskóla var
heimsóttur, og komið oft á suma. Margir tugir
harmonikuleikara tóku þátt í þessu starfi og
gáfu vinnu sína. Við Sigurður Alfons kennari
minn og félagi fórum oft saman á leikskóla
og förum árlega á suma. Reyndar fór ég aftur
í harmonikunám en nú hjá Sigurði til vors
2019 og þá benti Sigurður mér á að tala við
German Klophin en vegna anna tók ég mér
hlé frá námi síðastliðinn vetur og margt á ég
ólært enn.
I lok þessa verkefnis stóð SIHU að útgáfu á
geisladiski þar sem Baldur Geirmundsson lék
á harmoniku og Magnús Reynir Guðmundsson
kynnti lögin. Þessir diskar eru nú til í flestum
Ieikskólum landsins og notaðir þar.
Italíuferð og Stórsveit SIBS
Haustið 2014 bað Gunnar Kvaran mig að sjá
um ferðalag til Italíu fyrir SÍHU. Undir-
búningur gekk vel og þetta varð einstaklega
skemmtileg og eftirminnileg ferð með
14