Harmonikublaðið - 15.05.2020, Page 15
frábærum félögum víðs vegar af landinu.
Frásögn af ferðinni er í jólablaði Harmoniku-
blaðsins 2014.
Pétur Bjarnason hefur stýrt hljómsveit,
Stórsveit SIBS, um árabil en hún leikur
eingöngu á jólaböllum fyrir þá sem minna
mega sín. Hann bauð mér að koma til liðs við
Stórsveitina sem söngkona. Eg þáði það og
þarna komum við bara saman 12-14 hvert
sinn og spilum á jólaböllum, yfirleitt án þess
að æfa fyrst og þetta finnst mér skemmtilegt
og gefandi enda góðir félagar og fínir gestir.
Landsmót og formennska á ný
Eg haíði hugsað mér að njóta þess að spila
með hljómsveit FHUR, kvennasveitinni og
með Gyðu víða um bæinn einkum á
hjúkrunarheimilum og draga úr félagsstörf-
unum. Eg taldi mig hafa unnið félaginu vel
sem þyrfti að gera og hef verið í góðu
upplýsingasambandi við Karitas Pálsdóttur
fyrrverandi formann Harmonikufélags
Vestfjarða. I marsmánuði 2019 fórum við
Friðjón ásamt mökum okkar til Stykkishólms
og hittum alla málsmetandi menn þar,
bæjarstjórann og fleiri, fengum byr í seglin og
pöntuðum íþróttahúsið og hótelið. Mikil
jákvæðni einkenndi heimamenn svo við vorum
í skýjunum með viðtökurnar. Upphaflega var
landsmótsstjórnin skipuð okkur Friðjóni ásamt
Hauki Ingibergssyni gjaldkera. Haukur vildi
Iosna úr embættinu um áramótin 2019-20 og
fengum við þá Helga Jensson í hans stað, einnig
hafa Gyða Guðmundsdóttir og Sigurður
Harðarson unnið vel með okkur að
mótsundirbúningi.
Nú á vordögum 2020 var nánast öllum
undirbúningi lokið og fátt eftir annað en halda
Fjölbreytt áhugamál
Aðaláhugamál mín fyrir utan harmonikuna
hafa verið söngur, dans, fjallgöngur, ferðalög
innanlands og til annarra landa og
tungumálanám. Auk dönsku- ensku- og
þýskukunnáttu hef ég sótt námskeið í spænsku
og japönsku og lærði aðeins á píanó og bjástra
stundum við eina diatóniska þriggja raða
hnappanikku.
Áhugamál eins og harmonikan og tilheyrandi
félagsstarf krefst töluverðs stuðnings maka ef
hann er til staðar og hef ég sem betur fer orðið
þess aðnjótandi, því Reynir hefur ætíð staðið
eins og klettur við bakið á mér í öllu þessu
amstri. An hans hefði þetta ekki getað gengið.
Við njótum þess saman að sækja harmonikumót
víðs vegar um landið. Harmonikumótin á
íslandi eru líkt og ættarmót. Þar hittir maður
góða félaga úr stórfjölskyldu harmonikunar
Vaddútí hópurinn dferð
Með skemmtilegum Italíufórum
með stjórnarsetu, sem skemmtinefndarmaður,
meðstjórnandi, varamaður, gjaldkeri, ritari og
formennsku og að komið væri nóg.
Þá var skorað á Reykjavíkurfélögin að taka að
sér næsta landsmót SIHU 2020 og halda það
utan Reykjavíkur. Þáverandi stjórn FHUR
ræddi málið vandlega og komst meirihluti
stjórnarinnar að þeirri niðurstöðu að félaginu
væri um megn að taka þetta að sér. Þetta olli
titringi meðal almennra félagsmanna og
niðurstaðan varð sú að á aðalfundi vorið 2019
bauð ég mig fram á móti sitjandi formanni,
að höfðu samráði við eiginmanninn og reyndar
mikinn fjölda félagsmanna FHUR, þar sem
okkur þótti ótækt að elsta og fjölmennasta
félagið gæti ekki framkvæmt það sem mörg
smærri félög á landsbyggðinni hefðu séð um
með góðum árangri á liðnum árum.
Aðalfundurinn var algjörlega sammála þessu.
Að loknu sumarmótinu á Borg 2019 hófu
stjórn FHUR og Friðjón Hallgrímsson
formaður skemmtinefndar að vinna að
undirbúningi landsmótsins enda þekkjum við
Friðjón landsmótin vel og höfðum ýmsar
hugmyndir um framkvæmdina.
Eg fékk í upphafi minnisblað sem gengið hefur
milli landsmótshaldara til stuðnings við það
mótið sjálft. Þá kom kórónaveiran til sögunnar
og breytti ýmsu. I apríl ákváðum við að höfðu
samráði við SÍHU að fresta mótinu um eitt ár
og þegar var haft samband við alla sem að þessu
höfðu komið. Það er skemmst frá að segja,
viðtökurnar við þessu erindi voru jafn frábærar
og hið fyrra sinnið. Allir höfðu skilning á
aðstæðunum og voru sem fyrr boðnir og búnir
að hjálpa og hliðra til. Allir samningar sem
gerðir voru fyrir Landsmót 2020 halda gildi
sínu fyrir landsmótið sem vonandi verður
haldið á tilsettum tíma 1.-4.
júlí 2021.
Sérstakar þakkir fyrir góðar
móttökur og fyrirgreiðslu, fá
bæjarstjórinn í Stykkishólmi,
Jakob Björgvin Jakobsson,
Hjördís Pálsdóttir forstöðu-
maður Norska hússins og
hótelstjórinn á Fosshótel
Stykkishólmi.
Að lokum vil ég nefna sér-
staklega eitt varðandi undir-
búning, frestun og annað
sem hefur þurft að gera:
„Guði sé lof fyrir tölvur og
síma!“
þar sem við spilum, spjöllum, dönsum og
syngjum saman.
Margar góðar minningar lifa. Ég er þakklát
fyrir að eiga góða félagsmenn að sem ég get
leitað til og á engan er hallað þó ég nefni
Friðjón Hallgrímsson sérstaklega.
Ég vil að lokum óska öllum harmonikufélögum
landsins gæfu og gengis.
Viðtal: Pétur Bjarnason
Með barnabörnum i sumarbústaðnum
15