Harmonikublaðið - 15.05.2020, Side 17
Brugðið d leik á Breiðumýri
Æftjyrir leikþdtt d Breiðumýri
ári eftir að Breiðumýrarhátin var fyrst haldin
efndu Harmonikuunnendur Vesturlands til
harmonikumóts í Þverárrétt í Þverárhlíð í
Borgarfirði um Jónsmessuna 1992. Þáskráðu
sig 20 manns í gestabókina, en árið eftir var
talan komin í 70. Það var til baga við Þverárrétt,
hversu lítið var um tjaldsvæði. Það var þó aftur
haldið á sama stað næsta ár. Arið 1994 færðu
Vestlendingar sig um set og fóru að
Brautartungu í Lundarreykjadal. Þeir dvöldu
þó ekki lengi við í Brautartungu, því næsta
sumar voru þeir komnir að Faxaborg við Hvítá.
Sá staður hentaði ekki til harmonikumóta og
því var aftur farið í Þverárrétt, þar sem þeir
héldu sín mót næstu árin, að 1996 undanskildu.
Síðast voru Vestlendingar í Þverárrétt árið
2000. Þeir færðu sig í Fannahlíð undir Akra-
fjalli á næsta ári og voru þar uns mótshaldi
HUV lauk 2018, ef frá er talið 2013, þegar
þeir voru í Miðgarði. Þó samkomuhúsið í
Fannahlíð væri ekki stórt og aðstaðan á svæðinu
heldur frumstæð, myndaðist strax mjög
notalegt andrúmsloft í Fannahlíð. Upphafs-
menn að þessum mótum voru þeir Gunnar
Gauti dýralæknir ásamt Steinunni konu hans,
Geir á Kjaransstöðum ásamt Jóhönnu og Rafn
Jónsson með Þórunni í Borgarnesi. Mjög
fljótlega urðu mótin staður til að kynna unga
harmonikuleikara í héraði og stigu margir sín
fyrstu spor á framabrautinni á þessum mótum.
Það var margt líkt með mótunum á Breiðumýri
og í Þverárrétt og Fannahlíð. Til að byrja með
voru aðallega heimamenn og Reykvíkingar,
sem sóttu mótin. Upp úr aldamótunum mátti
hins vegar rekast á fólk á þessum mótum sem
komið var langt að. Það voru Þingeyingar í
Fannahlíð og Vestfirðingar í Ydölum. Allt varð
þetta til að auka kynni fólks og mörg sterk
vinasambönd, jafnvel hjónabönd fleiri en tvö,
hafa orðið til á þessum mótum. Þá má ekki
gleyma að mesta breytingin frá Galtalæk og
Þrastarskógi var sú að á Breiðumýri og í
Þverárhlíð var hægt að halda skemmtun
innanhúss. Því var ekki að heilsa á hinum
stöðunum. Eina afdrepið þar var salernis-
aðstaðan. Er hætt við að einhverjum þætti það
þunnur þrettándi í dag. Sumarið 1995 auglýstu
Selfyssingar harmonikumót að Alfaskeiði í
Hrunamannahreppi, gömlum og vinalegum
samkomustað þeirra Hrunahreppinga. For-
maður félagsins OlafurTh. Ólafsson og Þórður
Þorsteinsson sáu um undirbúning. Engin
hefðbundin dagskrá var að Alfaskeiði, en setið
og spilað og spjallað í sumarblíðunni. Síðustu
tvö árin var danspallur í nágrenninu en fólki
fannst hann óþarflega langt frá tjaldsvæðinu.
Danspallur þessi hafði áður átt sína
velmektardaga í Þrastarskógi. Saga Alfaskeiðs
varð hins vegar eklti löng, henni lauk 1999.
1 upphafi vildi það brenna við að mótin
sköruðust. Það bar við til dæmis sumarið 1998
að þrjú mót voru um Jónsmessuna. I Þverárhlíð,
Húnaveri og á Núpi í Dýrafirði. Smám saman
gerðu menn sér grein fyrir að það var að stórum
hluta til sami hópurinn sem stundaði harmo-
nikumótin og því komst þetta í svipað horf
og nú er, þó um verslunarmannahelgina hafið '
verið mót á tveimur stöðum um fimmtán ára
skeið, þ.e. í Jökulsárhlíð og í Árnesi og síðar að
Varmalandi í Borgarfirði og Borg í Grímsnesi,
en fjarlægð á milli staðanna kom í veg fyrir
alvarlega árekstra. Félag harmonikuunnenda
í Reykjavík hefur alltaf haldið sín mót um
verslunarmannahelgina. Upphaf þessara móta
má segja að hafi verið Harmonikumótið í
Iðufelli í Laugarási. Það var árið 1999 að
Snæbjörn Magnússon stóð fyrir harmonikumóti,
ásamt Hlíf Pálsdóttur, um verslunarmanna-
helgina, en þá voru líðin tvö ár frá síðasta mód
Harmonikunnar í Þrastarskógi. Þangað
flykktust harmonikuunnendur úr Reykjavík,
Suðurlandi og víðar af landinu, enda má segja
að þau hafi verið beint framhald af Þrastarskógi.
Sumarið 2003 var mótið í nafni FHUR, en
árið eftir flutti félagið sig í Árnes í Gnúp-
verjahreppi og var þar næstu sex árin, þegar
félagið flutti sig að Varmalandi í Borgarfirði.
Snæbjörn hélt þó áfram með sín mót í nokkur
ár í samstarfi við Harmonikufélag Reykjavíkur
og Harmonikufélags Selfoss. Allt um það í
næstu grein
Friðjón Hallgrímsson
Greinin unnin að stórum hluta samkvœmt
upplýsingum úr blaðinu Harmonikunni, auk
persónulegra viðtala.
Leikið Jýrir álfana áAlfaskeiði. Frá v.: Jón Ólafur Þorsteinsson, Sigrún Bjarnadóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Þórður
Þorsteinsson og Stefán Armann Þórðarson.
Nefndin sem stóð að skipulagningu hins stórskemmtilega móts að Breiðumýri. Frá v. Filippía J. Sigurjónsdóttir, Emhild
Olsen, Jón Jónsson, Rósa Þórðardóttir og Saga Jónsdóttir.
17