Harmonikublaðið - 15.05.2020, Page 18
/Viuutín^
Messíana Marzellíusdóttir
f. 18. maí 1942 - d. 24. mars 2020
Messíana Marzellíusdóttir fæddist 18. maí
1942 á Isafirði. Hún lést á Heilbrigðis-
stofnun Vestfjarða á Isafirði þriðjudaginn
24. mars síðastliðinn.
Messíana setti svip sinn á tónlistarlíf á
Isafirði þar sem hún var píanókennari við
Tónlistarskólann. Eftir að Harmonikufélag
Vestfjarða var stofnað 1986 kom í ljós að
sárlega vantaði harmonikukennara á
svæðinu. Asgeir S. Sigurðsson eiginmaður
Messýjar var fyrsti formaður félagins og
hefur líklega borið vandræði sín upp við
hana. Messíana brást vel við, fór sjálf að
læra á harmoniku og kenndi á það
hljóðfæri síðan um langt árabil. Henni
má ekki síst þakka það að vegur
harmonikunnar óx mjög hjá ungu fólki
á Isafirði og nágrenni. Meðal nemenda
hennar má nefna Helgu Kristbjörgu
Guðmundsdóttur, sem er nú í fremstu
röð íslenskra harmonikuleikara.
Messíana var heiðruð árið 2008 af
Sambandi íslenskra harmonikuunnenda
fyrir störf í þágu harmonikunnar. Það var
bæði vegna frumkvöðlastarfs við kennslu
á hljóðfærið og ekki síður fyrir starf
hennar með fleirum við að gera námskrá
fyrir harmonikukennslu, sem varð síðan
að veruleika. Með þeirri námskrá fékk
harmonikan verðskuldaðan sess í
tónlistarlífi íslendinga en var á köflum
litin hornauga af menningarvitum sem
„óæðra“ hljóðfæri.
Messíana tók mikinn þátt í starfi
Harmonikufélags Vestfjarða og spilaði
með hljómsveit þess. Þau Asgeir tóku þátt
í flestum landsmótum SÍHU sem haldin
hafa verið, en Asgeir var formaður
sambandsins í fjögur ár. Þau flökkuðu um
á húsbílnum sínum á sumrin, mættu á
harmonikumót og léttu lund fólks hvar
sem þau komu.
Asgeir safnaði harmonikum um langt
skeið og naut dyggrar aðstoðar Messýjar
við það. Árum saman var heimili þeirra
undirlagt af þessari iðju, þegar þar voru
geymdar á annað hundrað harmonikur.
Árið 2008 afhentu þau hjónin Isafjarðarbæ
140 harmonikur að gjöf og í dag telur
Harmonikusafn Asgeirs S. Sigurðssonar
ríflega 220 harmonikur.
Utför Messíönu fór fram í kyrrþey eins
og flestra um þessar mundir, en
minningarathöfn verður haldin síðar.
Ég sendi dætrum þeirra Ásgeirs og
afkomendum innilegar samúðarkveðjur.
Pétur Bjarnason
Minningarkveðja frá
Harmonikufélagi Vestfjarða
Þann 24. mars s.l. lést hér á ísafirði
Messíana Marzellíusdóttir fyrrum
tónlistarkennari við Tónlistarskóla
Isafjarðar, þar sem hún kenndi á píanó
og harmoniku til fjölda ára. Sjálf hafði
hún numið við þann sama skóla undir
handleiðslu Ragnars H. Ragnar, einnig í
Reykjavík hjá Jóni Nordal í eitt ár.
Messíana fæddist á Isafirði 18.maí 1942,
yngst 13 barna þeirra Albertu
Albertsdóttur og Marzellíusar Bernharðs-
sonar. Þann 30. desember 1961 giftist
Messíana Ásgeiri S. Sigurðssyni fæddum
21. nóvember 1937 en hann lést 20. apríl
2019. Þann heiðursmann sótti hún
norður í Þingeyjarsýslu þar sem hún var
við nám í Húsmæðraskólanum á Laugum.
Upp frá því bjuggu þau á Isafirði, þar sem
þau bjuggu dætrum sínum þremur,
Þórlaugu, Helgu og Sigríði, kærleiksríkt
heimili í gleði, ást og umhyggju með
vænum skammti af tónlist og bóklestri.
Messíana var ekki bara tónlistarkona, hún
var mikil hannyrðakona og mjög ötul í
félagsmálum, hún var um árabil formaður
Sjálfsbjargar á Isafirði og var sæmd
gullmerki samtakanna árið 2015. Hún
var einn af stofnendum kvennastúku
Oddfellow á Isafirði, þar var hún organisti
í 40 ár. Messíana stóð þétt að baki Ásgeirs
að stofnun og starfi fyrir Harmonikufélag
Vestfjarða, þar sem Ásgeir var formaður
frá stofnun og gegndi því í 20 ár og var
þrjú ár formaður Sambands íslenskra
harmonikuunnenda (SIHU). Þar lagði
Messíana örugglega hönd á plóg.
Messíana var heiðruð af SÍHU árið 2008
fyrir starf sitt í þágu harmonikunar. Vel
að því komin. Það má segja að harmonikan
hafi eignast lögheimili hjá þessum
heiðurshjónum. Meðan Messíana kenndi
á harmonikuna annaðist Ásgeir félags-
málin í heimahögum og á landsvísu. Að
eggjan Messíönu hóf Ásgeir að gera við
og fóstra lúnar harmonikur, sem síðan
endaði sem einstakt safn sem þau hjónin
afhentu Isafjarðarbæ 2008. Þá innihélt
safnið 140 harmonikur en í dag eru þær
ríflega 220. Samkvæmt Atburðabók
Harmonikufélags Vestfjarða er Messíönu
fyrst getið í stjórn félagsins 1995 og var
meðstjórnandi í þeirri stjórn er nú situr.
Hún sinnti spilamennsku með félögunum
í gegnum árin. Hjá Messíönu fann maður
hlýju og kærleik, bros á vör og húmor.
Það var mannbætandi að kynnast þessum
einstöku heiðurshjónum Messíönu og
Ásgeiri sem alltaf voru heil og sönn í öllu
sem þau tóku sér fyrir hendur, með
vestfirskum og þingeyskum húmor og
gleði. Vertu sæl okkar kæra vinkona og
félagi. Minning ykkar mun lifa. Við
sendum dætrunum Þórlaugu, Helgu og
Sigríði ásamt fjölskyldum þeirra okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar Harmonikufélags
Vestfarða, Hafteinn Vilhjálmssonformaður
I ljósi aðstæðna fór útför hennar fram í
kyrrþey, en minningarathöfn
verður auglýst síðar.
18