Harmonikublaðið - 15.05.2020, Blaðsíða 19
Bragi Gunnarsson
f. 26. mars 1937 - d. 26. nóvember 2019
Kveðja frá
Harmonikufélagi Rangæinga
Fljótlega eftir stofnum Harmonikufélags
Rangæinga árið 1985 gekk Bragi til liðs
við félagið og kom fyrst fram með
hljómsveit félagsins á landsmóti Sambands
íslenskra harmonikuunnenda árið 1990
og lék þá á rythmagítar. Ekki löngu síðar
færði hann sig yfir á bassagítar og lék með
hljómsveitinni á bassann allt til ársins
2015 er hann dró sig í hlé. Það er reyndar
varla hægt að fjalla um Braga nema
eiginkona hans Unnur sé nefnd í sama
orðinu, svo samrýmd voru þau hjón í öllu
sem þau tóku sér fyrir hendur. Unnur
gekk í harmonikufélagið um leið og Bragi
og hafa þau í gegnum árin verið traustir
og góðir félagar og öðrum til fyrirmyndar
hvað það varðar. Bragi var kjörinn
gjaldkeri í félaginu 1996 og gegndi því
starfi allt til ársins 2014 er hann lét af
embætti og eru honum þökkuð traust og
góð störf en ekki er grunlaust um að þar
hafi Unnur nokkuð að komið líka. Bragi
hafði næmt eyra fyrir lögum og lagavali
og hafði ákveðnar skoðanir á tveggja og
þriggja hljóma lögum og gat verið fastur
fyrir ef því var að skipta. Á sextugsafmæli
sínu fékk hann harmoniku í afmælisgjöf
og sótti nokkra tíma í námi til félaga síns
Grétars í Áshól og einnig hafði hann til
taks trommusett til heimabrúks og fyrir
gesti og ósjaldan var talið í lag er gesti bar
að garði. Fyrr á árum var gjarnan farið á
rútu í ferðir bæði á heimaslóðir og í
heimsóknir til annarra harmonikufélaga
vítt um landið og var þá gist í tjöldum
eða legið í flatsæng í samkomuhúsum eða
skólum og voru hljóðfærin ætíð með í för
og fjörið þá allsráðandi hvar sem stoppað
var. Ef veður var gott þá var spilað á
tjaldstæðinu gjarnan undir berum himni
og var aldrei spurt um heiti eða færni
manna, allir voru með. Einnig fór félagið
til Danmerkur og Færeyja og að sjálfsögðu
var bassinn með í för. Á seinni árum hefur
fólkið flust úr tjöldunum og flatsængunum
í draghýsi eða húsbíla en þau hjón áttu
slíkan bíl sem þau notuðu og nutu þess
að sækja hinar ýmsu hátíðir og landsmót
á vegum harmonikuunnenda vítt um
land. Við minnumst Braga fyrst og fremst
sem trausts og góðs félaga og þökkum
honum fyrir samstarfið öll þessi ár. Nú er
Bragi kominn á aðrar lendur og ekki
ólíklegt að talið verði í nokkur lög og
væntanlega verður Oli Lokbrá þar ofarlega
á blaði en það lag var í miklu uppáhaldi
hjá honum. Unni og afkomendum þeirra
hjóna færum við okkar innilegustu
samúðarkveðj ur.
F.h. Harmonikufélags Rangœinga
Haraldur KonráSsson
19