Harmonikublaðið - 15.05.2020, Síða 22
Vísur í Harmonikublaðið
- Hagyrðingaþáttur á Breiðumýri
Jólaball Harmonikufélags Þingeyinga í ár var
haldið á Breiðumýri í janúar eins og alltaf,
með bögglauppboði og vísnaþætd. Venjulega
hefur Vísnavinafélagið Kveðandi séð um
þáttinn, en núna sáu félagar um hann sjálfir.
Þátttakendur voru Sigríður Ivarsdóttir,
Þórgrímur Björnsson, Hólmfríður Bjartmars,
Davíð Herbertsson og Friðrik Steingrímsson.
Hér á eftir fara nokkrar af vísunum. Fyrsta
yrkisefnið var áramótaheit sem menn svöruðu
greiðlega, hvort sem þeir mundu það, eða ekki.
Minning þess er ekki alveg skær
hvort eina flösku drakk ég, eða tvær.
Svo varð ég alveg viti mínu fjær
og víman loksins rann af mér í gær. Davíð
Engum heitum inni frá
um þau blöðum síst mun fletta
því ýmsar konur yrðu þá
undirleitar ef þau frétta. Þórgrímnr
Alltaf heitin ein og tvenn
um áramót ég vinn.
Eg sver að elska alla menn
einnig minn. Hólmfríður
Eitt ég nokkuð um það veit
og öðrum betur þekki
Að þó ég strengi heilög heit
held ég þau bara ekki. Friðrik
Um launahækkun eldri borgara höfðu menn
þetta að segja.
Ei skal hlífa öldnum þræl
allra mestu hróin.
Teyma skal að tjóðurhæl
og troða af þeim skóinn. Þórgrímur
Ansi það mig grunar, að ekki græðist fé
á því sitja yfirvöldin bara.
Hækkanir sem áttu að verða, ekki beint ég sé
eitt er víst að nú er þörf að spara. Sigríður
Tæpast vera minna má
svo maður í það rýni,
þeir hafa varla efni á
öðru en brennivíni. Friðrik
Himnaríki var eitt yrkisefni frá stjórnanda.
I bernsku minni innrætt er
þó ýmsum þyki miður.
Að upp til himna andinn fer
en afgangurinn niður. Friðrik
Um grænar lendur þig guð fær leitt
gott ef þú kannt að meta.
Að himnavistinni er aðeins eitt
þar ekkert er til að éta. Sigríður
Um auglýsingar frá Kaupfélagi Borgfirðinga
um hálfvita og drullusokka orti Þórgrímur.
Niðjar Egils ekki meir
yrkja dýra ljóðaflokka.
En hafa til að hnoða leir
hálfvita og drullusokka. Þórgrímur
Um sjálfa sig, náttúruna og ellina höfðu menn
þetta að segja.
Ég hef yfir engu að klaga
ástand mitt er harla gott.
Vakna alltaf alla daga
úrillur með þynnkuvott. Friðrik
Ergir fóta ástandið
einhver heilsu vandi.
Einkum þann til vinstri við
vininn ódrepandi. Friðrik
Og eftir ballið lýsti Þórgrímur sér svona.
Eg er frekar fótasár
flestar tærnar rauðar.
Heilasellur hrumar þrjár
hinar allar dauðar. Þórgrímur
Að lokum var spurt hvort Harmonikufélagið
okkar væri að deyja.
Við erum nú bara Adams leir
og eilíf varla héðra.
Ef félagið okkar dalar og deyr
dönsum við bara í Neðra. Hólmfríður
Eg hygg það af sér storminn standi
ef starfar sérhver hönd þar fús.
Nema þá ef Siggi á Sandi
sendir það í sláturhús. Friðrik
Tvær vísur sendi Þórgrímur mér í kórónufríinu
og læt ég þær fljóta með.
Víðir stöðugt áminnir oss
atlota heima sérhver njóti.
Gefðu nú Sigurði góðan koss
þér gefst kannske annar á móti.
Þó við elskumst ákaft, sko
á það að vera svona.
Við skulum mæla metra tvo
á milli okkar kona. Þórgrímur
Með harmonikukveðju
Hólmfríður Bjartmarsdóttir