Harmonikublaðið - 15.05.2020, Síða 23
Fréttir af Harmonikufélagi Þingeyinga
SigurSur Tryggvason ásatnt félögum á sviÖinu á Breiðumýri
Þrátt fyrir leiðindaveður lengst af í haust og vetur tókst okkur að halda
dansleik 4. janúar á Breiðumýri og var þar líka hagyrðingaþáttur og
bögglauppboð undir öruggri stjórn fyrrverandi formanns, Jóns Helga.
Heldur var mæting dræm, sem kom þó ekki í veg fyrir að allir skemmtu
sér vel. Sigurður Tryggvason lék á harmoniku og leysti það vel að
vanda. Með honum spiluðu Pálmi Björnsson á gítar, Magnús
Kristinsson á trommur og Arni Þorvaldsson á bassa. Hagyrðingar
voru þau Þórgrímur Björnsson, Friðrik Steingrímsson, Hólmfríður
Bjartmarsdóttir, Sigríður Ivarsdóttir og Davíð Herbertsson og tókst
Glaöbeittur uppboðshaldari brýnir menn til kjarakaupa
þeim vel upp eins og þeirra var von og vísa. Uppboðshaldarinn Jón
Helgi hvatti viðstadda mjög til kaupa. Að lokum var stiginn dans af
miklum móð til miðnætds. Komu svo allir heilir og hressir heim. Af
öðru er heldur lítið að segja lítið að segja, harmonikudeginum frestað
ásamt öllu öðru vegna veirunnar og er þar stærst að við höfum ákveðið
ásamt Eyfirðingum að sleppa Ýdalahátíð þetta að árið, því miður.
Sigurður Olafsson formaður HFÞ
Með gómsœtri skyrfyllingu!
Skyrkonfekt er súkkulaði moli, gerður
úr gæða hvítu súkkulaði framleiddu af
Valrhona, með skyrfyllingu sem framleidd
er af Rjómabúinu Erpsstöðum.
Skyrkonfektið er handunnin vara og einstök
í sinni röð, hvað varðar útlit og bragð!
„ Ótrúlega
vel heppnuð
samsetning
þar sem
súrt og sætt
Skyrkonfektið er samvinnuverkefni
hönnuða og bænda undir handleiðslu matlSt
Listaháskóla Islands.
RJÓMABÚIÐ ERPSSTAÐIR
Sími: 868 0357 www.erpsstadir.is
BEINT FRÁ BÝLI
23