Harmonikublaðið - 15.05.2020, Page 24
Vorpistill úr Dölum
%
F.v Jón Benediktsson, Halldór Þ. Þórðarson og Melkorka Benediktsdóttir að spila við
dvalarheimilið Silfurtún á sumardaginn Jyrsta, Jlottir spilarar
Dalatónar 2020. Ingvar Bœringsson, Hafliði Ólafison, Kristinn Valdimarsson, Jóhann
Elísson, Guðbjartur Björgvinsson, Sigrún Halldórsdóttir, Halldór Þ. Þórðarson, Melkorka
Benediktsdóttir, Eggert Antonsson, á myndina vantar Kristján Inga Arnarsson sem var að
stilla tœknibúnaðinn þegar myndin var tekin
Starf Nikkólínu var með nokkuð hefðbundnum
hætti framanaf vetri. Við náðum nokkrum
góðum æfmgum þar sem var byrjað að æfa
fyrir komandi landsmót og svo auðvitað farið
yfir jólalögin. Fyrstu tvær aðventuhelgarnar
var spilað víða m.a. á hjúkrunarheimilinu
Fellsenda, í Króksfjarðarnesi og dvalarheimilinu
Barmahlíð, alltaf skemmtilegt að spila jólalögin
og góð stemming. Svo skall á þetta aftakaveður
10. des. með tilheyrandi rafmagnsleysi og
ófærð. Eftir það má segja að sjaldnast hafi
viðrað vel til samæfinga næstu mánuði. Félagar
úr Nikkólínu spiluðu að vanda á þorrablótinu
að Staðarfelli 15. febrúar og svo í lok þorra
náðum við að hittast nokkrum sinnum og
vorum komin á góðan skrið í æfingum þegar
yfir Iandið dundi Covid fárið og samkomubann.
Síðan æfir hver í sínu horni en það er nú búið
að fresta landsmótinu til 2021 þannig að við
hlýðum Víði og bíðum eftir æfingaleyfinu.
Harmonikuhátíð Nikkólínu og HUH sem
átti að halda á Laugarbakka í sumar hefur verið
frestað um ár vegna þessara „fordæmalausu“
aðstæðna í samfélaginu. Nú stefnum við að
harmonikuhátíðinni á Laugarbakka 11.-13.
júní 2021. Endilega takið helgina frá og mætið
þar, þetta hefur alltaf verið alveg frábær
skemmtun.
Hins vegar stefna félögin enn að því að halda
aðalfund SÍHU í Hótel Laugarbakka 12.
september nk.
En þrátt fyrir allt þetta ástand þá mættu þrír
góðir Nikkólínufélagar til leiks fyrir utan
dvalarheimilið Silfurtún á sumardaginn fyrsta,
23. apríl sl. A Silfurtúni eins og öðrum
stofnunum fyrir eldri borgara hefur verið
algjört heimsóknarbann og það reynir mjög
á vistmenn. Það var kannske ekki blessuð
blíðan þarna á planinu en þarna spiluðu þau
á fúllu góðan klukkutíma Halldór Þ. Þórðarson
og Jón Benediktsson á harmonikur og
Melkorka Benediktsdóttir á gítar. Harmonikan
er gleðigjafi hvar sem hún hljómar og
áheyrendur nutu stundarinnar vel og sungu
með.
24
Leiðin rudd að jjárhúsum
Sunnudaginn 26. apríl sl. var svo mætt í
Dalabúð, stillt upp og þess gætt vel að fylgja
fyrirmælum þríeykisins um 2ja metra fjarlægð
á milli manna og sprittflaskan að sjálfsögðu
við hendina til sótthreinsunar. Nikkólína
skellti þarna í góða syrpu af Dalalögum og
gömlum slögurum, allt tekið upp og sett inn
á YouTube. Spilarar voru Ingvar Bæringsson
á trommur, Hafliði Olafsson á gítar, Kristinn
Valdimarsson á bassa og á harmonikur Halldór
Þ. Þórðarson, Guðbjartur A. Björgvinsson,
Vetur konungur við völd
Jóhann Elísson, Sigrún Halldórsdóttir,
Melkorka Benediktsdóttir, Eggert Antonsson
og Kristján Ingi Arnarsson sem átti líka
hugmyndina að þessu og annaðist upptöku
og tæknivinnu. Að sjálfsögðu hvetjum við sem
flesta til að kíkja á okkur, slóðin er: Dalatónar
2020 — Nikkólína í Dalabúð
Að lokum bestu kveðjur úr Dölum, með von
um bjarta tíð með blóm í haga.
Hó, hó, allt fer á kaf í snjó