Gripla - 2022, Blaðsíða 319
317
alsendis aleinn berhendur hefur uppbyggja látið, hverrar lengd er 24 ál.,
breidd 13 ál. 3 ½ kvart, hæð 11 ½ alin. Þetta allt mælt fyrir utan höfuð-
stöpla kirkjunnar. Þar fyrir utan athuguðum vér bygging kirkjunnar að
utanverðu, á hennar útbrotum sem allt um kring, hver öll er af velsterkum
borðum umhverfis þiljuð allt frá aursyllum til yfirsyllna með álögðum
listum [6v] vel seymdum, sem og að utanverðu velmargir höfuðstöplar
kirkjunnar fóðraðir. Útbrotanna hvorutveggju súðþak fram í gegnum er
af völdum Gullandsborðum, hús vel sem [þ.e. jafnt og] höfuðkirkjunnar
súðþak beggja vegna. Af útbrotunum að austanverðu er yfirdregið með
bikuðum segldúk svo vel sem partur kirkjunnar á þá syðri síðu. Upp úr
miðri kirkjunni er gjörður turn áttkantaður með þilþaki allt um kring
að utanverðu, sérdeilis velköntuðu, með skynsamlega áskornum glugga
á hverjum kanti, hann og samandreginn að ofanverðu með vönduðum
hagleik. Fyrir ofan gluggana eru strikaðar rámur allt um kring en upp úr
turninum er förvuð stöng með úthöggnu járnverki, gulum knapp og út-
höggnum veðurvita með kórónu Hans Kongl. Majest. Christian V. Það
allt af járni. Einnig og allt um kring að utanverðu yfirdregin með bikuðum
segldúk. Framan og til baka á kirkjustöfnunum er<u> uppsett velgjörð,
förvuð og úthöggvin krosstré, hvar á úthöggvið sést ártal nær kirkjan var
byggð, sem er 1695, með þar ofan á settum krossjárnum, svo vel sem á
öllum kirkjukjölnum, vel þétt til baka og að framanverðu er hún þiljuð
upp í gegnum með langsettum borðum, listuðum; og upp yfir kirkjunnar
dyrum, þeim stóru, er úthöggvinn tafla með rámum og latneskum versum
förvuðum. Þar upp yfir er úthöggvið stykki með bildhöggvaraverki, þar
á úthöggvið Kongl. Majest. Christian V. nafn með yfirsettri úthöggvinni
kórónu og af bildhöggvaraverki. Kringum áðurnefnt Kongl. Majest. nafn
er úthöggvin pálmaviðargrein með grænum color, hvar inn í úthöggvið
er kongsins Symbolum með latneskum stöfum: Pietate et Justitia. Fyrir
aðaldyrum kirkjunnar er hurð á rammbyggðum, sterkum járnum, á hæð
2 ál. 3 ¼ en á breidd vel 2 ál. með þrennum þverokum vel breiðum og
síðan þeirra í milli krossokar, allt með járnsaum. Hún er ásamt dyrum
dyrastafanna förvuð, með velþykkum koparhring og ágröfnu nafni herra
lögmannsins, er hann kirkjunni hefur forærdt [þ.e. gefið], með tilhlýði-
legum festpinna af kopar. Hún [þ.e. hurðin] er og með íslenskri læsingu,
valdri og stórri, og þykkum kring. Dyr eru á syðri síðu Kórsins með [7r]
úthöggvinni farvaðri töflu, þar yfir með bildhöggvaraverki fallega proportio-
HEIMILDIR UM KLAUSTURKIRKJUNA Á ÞINGEYRUM