Muninn

Volume

Muninn - 01.08.2008, Page 21

Muninn - 01.08.2008, Page 21
21 Morfís lið Menntaskólans á Akureyri í ár skipa þau Valur Sigurðarson (4. X), Gísli Björgvin Gíslason (3.F), Gréta Kristín Ómarsdóttir (3.F), Inga Heinesen (3.G), en sú síðastnefnda er nýr meðlimur liðsins. Æfingar eru hafnar hjá liðinu og er fyrsta keppni þeirra við lið MÍ þann 10. janúar. Sérsvið/hlutverk innan Morfís ef það er eitthvað: I: Liðsstjóri. V: Frummælandi. GB: Meðmælandi. GK: Stuðningsmaður, ritari og ofstuðlaður Freud-yfirdrullari. Hvað eru þið búin að vera að gera síðan skólinn byrjaði og hvað er á döfinni? GK: Það er æfing einu sinni í viku þar sem við æfum okkur að semja og flytja ræður, horfum á ræður, ræðum um ræður og eigum áhrifamiklar hitaumræður um ræðumennsku, áróður og gróðurhúsaáhrif… Svo stuðlum við mikið, eða það er kannski bara ég. Hvernig leggst keppnin í ykkur þetta skólaárið? GB: Bara mjög vel. Við mætum sterkari en í fyrra, reynslunni ríkari. Af hverju fóru þið í Morfís? I: Af því að mig langaði til þess. GK: Til þess að bjarga fátæku börnunum í Afríku og láta Geir H. Haarde hætta að prumpa á áruna mína... Svo var ég bara rosa þreytt á því að hanga á Facebook, langaði að gera eitthvað við líf mitt. GB: Það var eiginlega bara af forvitni í fyrra. Að vísu var bróðir minn í Morfís fyrir mörgum árum, í VMA, ekki segja. Ef þið mættuð velja einn hlut til að taka með ykkur á eyðieyju hvað væri það? I: Tölvan held ég bara. V: Rúbikstening. Hvað er það vandræðalegasta sem þið hafið lent í? V: Ég fór í trúnó við stelpu úti á Ródos, án þess að fatta að hálfur árgangurinn væri fyrir aftan mig að hlusta með mikilli athygli. GK: Að labba inn á indverskan lyftingadverg í Verzló, að tefla við páfann með leðurhanska og sleipiefni frá FS. Það var geðveikt vandræðalegt. Pylsur

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.