Muninn

Árgangur

Muninn - 01.08.2008, Síða 32

Muninn - 01.08.2008, Síða 32
Það þarf ekki nema örlítinn rúnt niður í bæ til að sjá ótal kvenmenn í sleik við vinkonur sínar, að pota í brjóstunum hvor á annarri og að öðru leyti sýna hver annarri óhóflega ástúð, sem er auðvitað eitthvað sem ég get ómögulega haft augun af! Hvað er það?! Lesbíukynlíf er eitthvað það tilgangslausasta og kjánalegasta sem er til í heiminum! OK, ég get skilið kynlíf milli tveggja karla, það er prik og gat á hverjum. Möguleikarnir eru endalausir, eins og Legó, og ef ímyndunaraflið þrýtur, er bara hægt að bæta einum við! En þetta virkar ekki þegar tveir kvenmenn eiga í hlut! Hvernig setur maður gat í annað gat? Það er ekki hægt! En það er allavega eitt sem bæði kynin eiga sameiginlegt, og það er óútskýranlegt dálæti þeirra á samkynhneigðum einstaklingum af hinu kyninu, en þó eru konurnar heldur betur verri í þessum efnum. Ég get ekki farið í partý og litið upp af drykknum mínum án þess að sjá ónefndan samkynhneigðan vin minn, hann Axel Inga Árnason, sitjandi í mjúku sófahorni með pina colada í annarri og brjóstið á vinkonu sinni í hinni. Svo er ómögulegt að koma sér af stað niður í bæinn með honum því fyrst þarf hann að safna saman kvennabúri af þvílíkum fjölda að jafnvel Hugh Hefner mundi segja „vó“. Það er því staðreynd að eina 100% pottþétta leiðin til þess að komast í buxurnar á kvenmanni, jafnvel áhrifaríkara en að „detta í Friends,“ sem sýndi aðeins 98% skilvirkni, er að sannfæra hana um að maður hafi alls engan áhuga á henni. Enn ein vísbendingin um að æðsta ósk allra kvenmanna er að vera óáhugaverð og auðmýkt. Þannig að næst þegar þú ert á Pallaballi og sérð ekta dæmi um princess við barinn skaltu skella á þig hommagrímunni, setjast við hliðina á henni, panta Sex on the Beach og segja „Hei beibí, ég er bara fyrir typpin.“ Ég garantera það að þú munt fá meiri boob heldur en þú veist hvað þú ættir að gera með. Kannski af því að þú ert samkynhneigður og veist ekkert hvað á að gera við kvenmannsbrjóst! Góðu gestir. Ég elska kvenmenn. Og ég hata það. En það er til lausn! Við getum brotist undan ofríki kvenna! Við getum kastað af okkur fjötrum okkar og lifað í veröld frelsis og örlætis! Heyrið orð mín, synir Adams! Félagsfræðinemar, málabrautanemar og náttúrufræðinemar! Ég sé í augum ykkar sömu hræðslu sem myndi heltaka mig! Dagur mun koma þar sem hugrekki manna sigrar freistinguna! Dagur þar sem við afneitum vagínunni og brjótum öll hjúskaparloforð! Og þessi dagur er í nánd! Ný öld mun rísa! Hommaöld! Faggaöld, þar sem veldi kvenna hrynur niður! Tíminn er kominn! Fyrir allt það sem ykkur er kært þá segi ég ykkur að koma út úr skápnum! Í nafni föður, sonar og Axels Inga Árnasonar! FRELSI!!! FRELSI!!! FRELSI!!! Valur Sigurðsson

x

Muninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.