Muninn - 01.08.2008, Qupperneq 33
Það þarf ekki nema örlítinn rúnt niður
í bæ til að sjá ótal kvenmenn í sleik við
vinkonur sínar, að pota í brjóstunum
hvor á annarri og að öðru leyti sýna hver
annarri óhóflega ástúð, sem er auðvitað
eitthvað sem ég get ómögulega haft
augun af! Hvað er það?! Lesbíukynlíf
er eitthvað það tilgangslausasta og
kjánalegasta sem er til í heiminum! OK,
ég get skilið kynlíf milli tveggja karla, það
er prik og gat á hverjum. Möguleikarnir
eru endalausir, eins og Legó, og ef
ímyndunaraflið þrýtur, er bara hægt að
bæta einum við! En þetta virkar ekki
þegar tveir kvenmenn eiga í hlut! Hvernig
setur maður gat í annað gat? Það er ekki
hægt!
En það er allavega eitt sem bæði kynin
eiga sameiginlegt, og það er óútskýranlegt
dálæti þeirra á samkynhneigðum
einstaklingum af hinu kyninu, en þó eru
konurnar heldur betur verri í þessum
efnum. Ég get ekki farið í partý og litið
upp af drykknum mínum án þess að sjá
ónefndan samkynhneigðan vin minn,
hann Axel Inga Árnason, sitjandi í mjúku
sófahorni með pina colada í annarri og
brjóstið á vinkonu sinni í hinni. Svo er
ómögulegt að koma sér af stað niður í
bæinn með honum því fyrst þarf hann
að safna saman kvennabúri af þvílíkum
fjölda að jafnvel Hugh Hefner mundi
segja „vó“.
Það er því staðreynd að eina 100%
pottþétta leiðin til þess að komast í
buxurnar á kvenmanni, jafnvel áhrifaríkara
en að „detta í Friends,“ sem sýndi aðeins
98% skilvirkni, er að sannfæra hana um
að maður hafi alls engan áhuga á henni.
Enn ein vísbendingin um að æðsta ósk
allra kvenmanna er að vera óáhugaverð
og auðmýkt. Þannig að næst þegar þú
ert á Pallaballi og sérð ekta dæmi um
princess við barinn skaltu skella á þig
hommagrímunni, setjast við hliðina á
henni, panta Sex on the Beach og segja
„Hei beibí, ég er bara fyrir typpin.“ Ég
garantera það að þú munt fá meiri boob
heldur en þú veist hvað þú ættir að gera
með.
Kannski af því að þú ert
samkynhneigður og veist ekkert hvað á
að gera við kvenmannsbrjóst!
Góðu gestir. Ég elska kvenmenn. Og ég
hata það. En það er til lausn! Við getum
brotist undan ofríki kvenna! Við getum
kastað af okkur fjötrum okkar og lifað í
veröld frelsis og örlætis!
Heyrið orð mín, synir Adams!
Félagsfræðinemar, málabrautanemar
og náttúrufræðinemar! Ég sé í augum
ykkar sömu hræðslu sem myndi heltaka
mig! Dagur mun koma þar sem hugrekki
manna sigrar freistinguna! Dagur þar
sem við afneitum vagínunni og brjótum
öll hjúskaparloforð! Og þessi dagur er
í nánd! Ný öld mun rísa! Hommaöld!
Faggaöld, þar sem veldi kvenna hrynur
niður! Tíminn er kominn! Fyrir allt það
sem ykkur er kært þá segi ég ykkur að
koma út úr skápnum! Í nafni föður, sonar
og Axels Inga Árnasonar!
FRELSI!!!
FRELSI!!!
FRELSI!!!
Valur Sigurðsson