Muninn - 01.08.2008, Page 40
Hæ, ég heiti Palli. Ég er í þriðja bekk. Mér finnst alltaf svo
gaman í skólanum. Þar er mikið af fólki og allir skemmta sér og
eru stuði í. Stundum kemur Jón Már í Kvosina og heldur ræður. Þá
er kátt í höllinni. Hann er svo grípandi og snarorður. Hann fer
líka oft í sund. Það finnst honum góð líkamsrækt. Þrisvar sinnum
í viku fer ég í tíma sem heita heimspeki. Þar kennir Sigurður
Ólafsson. Hann er alltaf svo góður og uppbyggjandi við nemendur
sína. Svo er hann líka með skegg, eins og jólasveinninn, nema
bara minna. Það er frábært! Stefán Þór kenndi mér einu sinni
líka. Hann er líka skemmtilegur. Hann hlustar á Genesis og finnst
það gaman. Það finnst mér líka! Stefán Þór er á móti fíkniefnum.
Stundum segir hann samt sögur um það þegar hann var að nota
fíkniefni þegar hann var ungur. Það þýðir að hann veit hvað er
gott og hvað er slæmt. Við erum heppin að hafa hann! Ég ætla að
verða alveg eins og hann þegar ég verð stór. Núna er Gunnhildur
Ottósdóttir að kenna mér. Hún veit sko allt! Ef maður er ekki
alveg viss þá spyr maður hana bara og hún getur sko alltaf
svarað. Hún hugsar líka svo vel um mann. Hún segir að maður eigi
ekki að drekka gos og borða nammi því það er svo óhollt og þá
komi Karíus og Baktus og höggvi í tennurnar manns. Það er líka
alveg rétt sko. Svo er Valdís stærðfræðikennari alveg rosalega
skemmtileg! Hún er alltaf að segja skrítlur um námsefnið og stun-
dum er hún í stuttermabolum með fyndnum myndum og merkjum sem
tengjast stærðfræðinni. Þannig nær hún að ná svo vel til allra
nemendanna sinna. Það geta sko ekki allir! Ég þoli samt ekki fólk
sem fer ekki eftir reglum. Það á að fylgja reglunum í skólanum
sínum. Sumir fara ekki úr útiskónum þegar þeir koma inn. Þá
verður gólfið blautt og skítugt og þá þurfa sokkarnir mínir að
fara í þvott. Þá verður mamma leið. Svo verða líka konurnar sem
skúra í skólanum svo leiðar ef allir fara inn á skónum. Þá er
alltof mikið að gera fyrir þær. Svo er líka svona ótrúlegt fólk
sem mætir stundum ekki í tímana sem það á að mæta í. Eða mætir
jafnvel of seint í þá! Fólk á sko alltaf að mæta á réttum tíma.
Nema þegar maður er veikur. Þá fær maður vottorð. En ég verð að
kveðja núna, litlu jólin eru að byrja og ég verð að drífa mig svo
ég fái að dansa í kringum jólatréð. Það er svo gaman.